3.06.2014

hin bitra

Hæ, ég hef bloggað lítið upp á síðkastið, mér hefur ekki fundist nein ástæða fyrir því að blogga þar sem enginn fylgist með því sem ég er að gera ekki, að það sé eitthvað sem ég hafi fyrir stafni þar sem ég hef enga vinnu og þar með hitti ég enga.

Ég er með 3 finku pör og eitt parið er með 4 unga, þetta er það sem heldur mér gangandi flesta daga það eru dýrin mín, þau ein gefa mér tilgang á meðan ástandið er svona hjá mér.

En já svona er þetta, lífið er ekki dans á rósum, ég byrjaði á því að taka stúdentspróf og fór svo í HÍ í nám þar en námið hentaði mér ekki þótt ég hafði mjög gaman af því sem ég valdi mér. Þannig ég fór í annan skóla og annað nám og kláraði það, nema ég fæ enga vinnu við það og að vera Tanntæknir virðist vera ómögulegt að fá vinnu við í dag og það er alveg glatað að eyða tíma og pening í nám og fá svo enga vinnu við það. Enga vinnu yfir höfuð ekki í búð og bara ekki neinu.

Þannig þið fyrirgefið ef þessi lesning er ekki skemmtileg núna, kannski skánar það og eitthvað breytist en stundum hjálpar það manni að skrifa hér inná þótt það sé eitthvað svo tilgangslaust í leiðinni. En ég er þó ekki að skella þessu væli mínu inn á facebook, þar sem fólki er sama og finnst bara pirrandi sumt sem maður setur inn á hjá sér.

Þangað til næst. kv eigið góðan dag.

11.06.2013

ó já nóvember er víst kominn, tíminn líður hratt.

Komið þið sæl, long time no seen :) Hvað segið þið þá? vonandi gott bara.

Nú líður að jólum og er kominn sjötti nóvember, get þó sagt að ég er í nokkuð góðu andlegu jafnvægi þessa dagana, t.d í gærkvöldi skellti ég í Engiferkökur sem ég bakaði í fyrsta sinn ein og með hrærivélinni minni sem er algjör draumur.

Ofdekra kisurnar mínar eins og ég get og fuglarnir mínir hafa það sömuleiðis gott. 5 finku egg eru komin hjá parinu mínu og verður spennandi að vita hvað eggin verða mörg í heildina og hvað margir ungar koma í þetta skipti, eitt reyndar brotnaði þannig í raun væru þau 6 en svona getur gerst, síðast komu 4 ungar úr 6 eggjum og allir heilbrigðir :) 2 ungar fóru í gæludýrabúðina til Tjörva, Furðufuglar og fylgifiskar, stelpu unginn er hjá mér og fer í ræktun þegar hún er tilbúin og 1 strákinn keypti ræktandi þannig ungarnir fara vonandi á góð heimili sem eftir voru í búðinni.

Á svo eftir að baka fleiri sortir og prufa mig áfram í þessu hehe. En jæja ég hef það fínt og blogga meira seinna. Hafið það gott öll sömul.

9.30.2013

jebbs nóg að gera.

Hæ hæ allir, þetta er nú búið að vera meiri dagarnir hjá mér, vill svo til að ég fékk ekki áframhaldandi vinnu á þessari tannlæknastofu vegna þess að ég er ekki nógu sjarmerandi, ágætt að vita það. Þannig ég er atvinnulaus. En ég er ekki verkefnalaus þrátt fyrir þennan missi.

Ég hins vegar varð 25 ára núna þann 24 september síðastliðinn og sama dag byrjaði ég hjá kíróprakter sem er að gera mjög góða hluti fyrir bakið og hálsinn minn, alger snillingur þessi maður. Verð í því í sirka 3 vikur og síðan kemur í ljós hvað kemur út úr þessu öllu saman. Að minnsta kosti eru bólgurnar mínar búnar minnka heilmikið og ég hef ekki tekið inn 1 verkjatöflu :) þannig þetta er heldur betur að virka.

Fékk litla 9 ára frænda minn í gistingu á föstudaginn og það var svaka gaman hjá okkur þar sem ég hef ekki hitt hann mjög lengi, daginn eftir hélt ég upp á afmælið mitt með 5 vinkonum, eldaði lambalæri, brúnaðar kartöflur, grænar og gular baunir, gos, sósa og afmæliskaka ásamt rjóma...þetta heppnaðist mjög vel allt saman.

Þetta er það sem ég hef verið að gera, fuglarnir mínir hafa það svaka gott og ungarnir braggast vel og farnir að éta næstum því allir sjálfir og kisurnar eru ofdekraðar eins og vanalega hehe...en lífið er nokkuð gott bara :) 

Kattasýning næstu helgi og síðan er bara að reyna að njóta lífsins :)

9.22.2013

Fuglarnir mínir :)

Nokkrar myndir af fuglunum mínum :) 

Mamman og pabbinn.

Svona voru ungarnir fyrst ;)  
Hér smá stærri
Fyrsti unginn byrjaður að opna augun 
Svo svona 
Kíkti út í fyrsta skipti
Hinir farnir að fá fjaðrir :) 
Elsti unginn
Síðan eru allir komnir út og vel fjaðraðir :) 





Lífið er gott, hefur gengið á ýmsu í gegnum mitt stutta líf en það er allt á réttri leið :)

Hæ allir, það eina sem ég vildi sagt hafa að ég er í svo andlega góðu jafnvægi aldrei þessu vant og hugarfarið gjörbreytt að lífið er bara gott.
Fuglarnir mínar eru svo mikil æði og tala nú ekki um elsku kettina mína sem ég elska svo mikið :) 

Mitt mottó er að vera ánægð með það sem ég hef og á, þeir hlutir sem ganga ekki upp hljóta að opna aðrar dyr og betri. Ekki er hægt að svekkja sig á hlutum því að það dregur mann bara niður, lífið er of stutt til þess að hanga í fortíðinni, að hugsa um það sem gengur upp og mun koma er miklu betra. Eigið góðan dag :)

9.12.2013

Jæja gott fólk long time no seen :)

Hæ allir, vá ég var svo lengi að komast inn á bloggið mitt núna aftur því ég hef ekki farið inn á það mjög lengi.
Það hefur nú ýmislegt gerst á þessum tíma sem ég var hér inná síðast hehe, var í tanntækninámi og er útskrifuð úr því 24 mai 2013 og gekk þetta nokkuð vel...síðan fór sumarið bara í að ég vann í heila 16 daga á leikskóla sem stuðningsfulltrúi með einhverfan útlenskan dreng og annan útlenskan sem átti eftir að fá greiningu..samkvæmt stjórnanda þá var ég ekki að henta í það starf og já það bara gekk ekki upp...hins vegar ákvað ég að gefast nú ekki upp á að finna mér vinnu sem Tanntæknir fyrst ég var nú búin að leggja það á mig þetta blessaða nám sem var misjafnlega erfitt fyrir mig þar sem ég á við námsörðugleika að stríða upp að vissu marki þannig að ég fer þetta allt á þrjóskunni og viljanum og á endanum gekk þetta upp :) 

Ég flutti frá staðnum sem ég bjó í þar sem ég mátti ekki vera þar lengur vegna þess að ég var ekki í námi fyrst ég útskrifaðist úr þessu þannig ég flutti í aðra íbúð í júní og er það núna og líður vel. Bý þar ásamt 2 kisunum mínum og fuglum sem eru með 4 unga hjá sér núna ekkert smá sætir...svo gaman að fylgjast með þeim frá því þeir komu úr eggi og stækkun þeirra á hverjum degi hef svo gaman af þessu, núna í dag tók ég svo hreiðrið þeirra út úr búrinu svo að foreldrarnir færu ekki að huga að öðru varpi strax og hætta að gefa sínum eigin ungum mat og athygli. 

Ég hef verið að reyna að finna mér tanntækni vinnu hjá tannlæknastofu og var orðin vonlítil að þetta myndi gerast á þessu ári fyrir mig, ég sendi email út um allt og ekkert virtist ætla að ganga, fékk engin svör eða þegar ég fékk þessi fáu svör sem fengin voru að þá varð ekkert meira úr því,,þangað til í síðustu viku fór eitthva að gerast, ég var boðuð í 2 viðtöl hjá sitthvorri tannlæknastofunni og mér leist bara nokkuð vel á en var stressuð hehe sem er svo sem ekkert furðulegt, en ég fékk símtal á sunnudaginn og var boðið að koma í prufu og ég alveg himinlifandi yfir þessu boði og þáði það áður en ég fór heim var mér boðið í prufu 2 og ég bara já vá auðvitað þigg ég það...síðan í gær áður en prufunni lauk var ég spurð hvernig mér líkaði að vera þarna og hvort ég vildi koma að vinna hjá þeim í 3 mánuði til að fá reynslu og vita hvernig mér myndi líka hjá þeim og þau við mig og ég er svo ánægð að ég sagði já við þessu boði og er því komin með vinnu hjá þeim í 3 mánuði til að byrja með og ef mér líkar og þeim líka að þá fæ ég að vera lengur en 3 mánuðir fyrst og ég tek einn dag í einu...þetta er alveg mergjað gott sko...þannig að ég tók mig á um daginn og ákvað að líta jákvætt á hlutina og reyna að hugsa jákvætt og síðan gerist þetta og mér líður svo vel yfir þessu, þannig já lífið er gott og allt í áttina :) ég þakka fyrir mig, aldrei þessu vant er ég sátt við lífið og allt virðist ætla að ganga upp :) mottóið er bara að vera duglegur og gefast ekki upp.

12.20.2012

nóg að gera

Hæ hæ, jæja þá er allt gott að frétta, ég náði öllum prófunum mínum :)
Nýju gleraugun mín komu núna í morgunn og ég er búin að ná í þau á pósthúsið - allt annað líf :D

Endalaust flakk á mér, Blönduós, Sauðárkrókur oft, Akureyri, Reykjavík og svo til baka aftur :P

Bíð bara eftir pabba mínum sem kemur heim af sjónum á laugardaginn :D það verður fínt að fá kallinn heim.

Fínt að vera heima og nóg af köttum til að knúsa samtals 5 stykki hehe rosa gaman hjá mér og nó af kattasand til að hreinsa en það fylgir bara....tók Mollý og hreinsaði af henni mesta feldinn og hnúta og rakaði restina af því sem ég náði,,,og nú djöflast ég á henni með linsuvökva sem tekur drulluna úr augunum hennar svona að mestu en þetta þarf að endurtaka oft, byrjaði bara á þessu í gær til að prufa en þarf að halda þessu við á hverjum degi svo að hún verði ekki gul í framan og á loppunum.

Jólin á mánudaginn og þetta verður vonandi bara fínt...

Hér er svo ég með nýju gleraugun mín :D er rosa ánægð að vera komin aftur með þessa þægilegu umgjörð.


12.02.2012

Allt að gerast bara

hæ allir, ójá það er langt síðan ég hef bloggað :) 

Ég er nú bara búin að vera á fullu í náminu mínu...er búin með 2 lokapróf og þeim náð...fer svo í fyrsta des prófið mitt á morgunn þann 3 desember sem er í gervitannagerð...

þetta er allt mjög áhugavert í náminu og ég tel að ég sé loksins komin á mína hillu hvað nám varðar...vona bara að ég nái öllu og að ekkert komi upp á þessari námsleið minni... 

Hins vegar bjargaði ég kettling þann 10 október frá dauða úr Kattholti...Fékk hann nafnið Tumi ...hægt var að telja öll rifbeinin hans og hann var við dauðans dyr...þurfti að fara með hann 3 sinnum til læknis áður en hann náði sér að fullu. Vóg Tumi 820 g fyrst en ég var að enda við að vigta hann núna áðan og vegur hann 2224g :) þannig hann er heldur betur búinn að þyngjast þessi elsku litli kisi.
Hér er mynd af honum sem ég bara varð að taka...litla tungan hans stendur út þegar hann er steinsofandi hehe hvað er sætara en þetta hehe

Annars gengur allt sinn vanagang og ég fer heim 7 desember eftir jólaprófin mín og get ég ekki beðið eftir að fara heim og hitta alla, þar með verða 5 kettir á heimilinu yfir jólin,,algjört stuð :) 

Megið Guð vera með ykkur yfir hátíðirnar sem og ávalt...blogga meira seinna, kv Rebekka.

9.05.2012

jebb jebb kominn september

HÆ HÆ allir...langt síðan ég hef bloggað eitthvað :)

Ég er byrjuð í verknáminu mínum sem er í tanntækni...var fyrstu eina og hálfa vikuna í klinik að skoða allt og aðstoða ef ég fékk hehe,,,

Núna þessa viku er ég á sótthreinsun sem er sæmilegt en ekkert svakalega skemmtilegt en maður þarf að klára þetta svo allt gangi upp hjá tannlæknunum,,vil vera í aðal dæminu hjá sjúklingunum  :P 
Næsta vika verður þannig hehe og svo í lok sept eða byrjun okt fer ég í heimsókn á tannlæknastofu þar sem ég verði í viku að aðstoða :) pressa en verður örugglega fínt :) vona það allavega.

Það kom upp spurning hvort við ættum að hafa eitthvað á hverjum föstudegi eitthvað gott að borða kökur, salöt eða bara það sem við viljum og það var samþykkt þannig að sett var upp plan hvenær hverjar 2 saman eiga að koma með eitthvað við erum 14 sept þannig spurning hvort ég baki köku og eitthvað gott,,,rúlla því nú auðveldlega upp heheheh þótt ég segi nú sjálf frá :) 

Held að þessi önn verði fljót að líða miðað við að þetta er áhugavert, við erum í hvítu fötunum okkar með hlífðargleraugu þegar við á og læknagrímu haha svo við séum ekki að anda beint framan í fólkið í stólnum sem tók smá tíma að venjast því þetta er frekar óþægilegt en mörgu má venjast ;) 

Ég fór á ljósanótt síðustu helgi og þetta var bara fínt,,reyndar alveg hundleiðinlegt veður rigning og rok og ég kvefuð þannig að laugardagsdjammið mitt fór ekki alveg eins og ég ætlaði...fórum heim sirka 23 um kvöldið og svo fór ég ekki meira út þann daginn þar sem ég var dauð algjörlega hósti og kvef ....en sofnaði nú samt ekki fyrr en 03 hahaha svo vaknaði ég um 8 leitið að morgni til og var þá einn vinur minn farinn heim til sín gafst upp og fór en það er allt í lagi, hafði bara pínu áhyggjur hvort hann hafi farið heim eða eitthvað annað en það en svo hafði hann bara farið heim til sín að sofa sem er gott mál .... þannig ég sjálf fór bara og pakkaði niður og keyrði í borgina og sofnaði til 12 og fór svo að passa og var með hann til 18 og fór svo heim drullu kvefuð ....svona var nú það hehe..

En jamm ég keypti mér Hunger games myndina í dag haha gat ekki beðið því hún er svo spennó fór í hana í bíó og hún er fín....horfði á hana og át popp með :P aðeins að slaka á eftir skólann í dag...en það er svo sem ekkert meira að segja í bili..

Hafið það gott og leyfið ykkur að lifa vel :) 

6.25.2012

Prjónaskapur minn upp á síðkastið

hér er það sem ég er að dunda mér við að prjóna :) 


Nýjasti sokkurinn sem ég var að dunda mér að gera eftir vinnu í dag og var að enda við :) svo á bara eftir að gera hinn á móti.
 

Hér er það sem ég prjónaði fyrir nokkrum dögum 


vetlingar sem ég bjó til í stíl við sokka eins og eru hér fyrir ofan -þessir gulu nema hinir voru grænir :) 

Fyrstu sokkarnir mínir með hæl með munstri úr bók hehe rosa ánægð miðað við að þetta var í fyrsta skipti sem ég gerði munstrið en það reyndar sést ekki nógu vel en þetta er það sama og á bláu vetlingunum hér að ofan. 

Hér kemur smá af safninu mínu en grænu vetlingarnir tilheyra því hehe 

En svo á ég reyndar fleiri sokka og vetlinga sem ég hef prjónað í gegnum æfina en það er mis vel gert enda gert á meðan ég var að læra að prjóna hehe en jamm mig langaði bara til að sýna ykkur svona brot af því nýjasta og hér með er það komið í bili :) 

6.24.2012

nóg að gera.

Hæhæ allir...nú er júní alveg að verða búinn að það sem er búið af árinu ótrúlega fljótt að líða....


Allt gengur vel í vinnunni fyrir utan smá svona óþarfa drama hluti hjá sumum en er það ekki á hverjum vinnustað hehehe....ágætis fólk þar sem ég er að vinna með og þetta gengur.


Er núna að fara út á smá rúnt og taka myndir með Gunnari, hef ekki gert svoleiðis í langan tíma ...enda endalaus vinna í 6 daga í röð í hverri viku ....spurning hvað maður gerir hhehe....


Einn lítill drengur fæddist 19 júní hjá vinkonu minni voða sætur hehe gerði smá pakka handa honum sem ég fer með á póstinn á morgunn vona að þeim líki innihaldið hehe...en jamm þetta er svona aðal sem er að gerast...ekkert annað í bili....blogga meira seinna..bæjó.

6.04.2012

lífið

well halló allir,,,,nú er ég byrjuð að vinna í Hagkaup í Kringlunni, vinn alla daga nema sunnudaga, alveg meira en nóg að gera.....er bara ánægð að hafa fengið vinnu yfir sumarið þannig vonandi get ég borgað mína reikninga og átt smá afgang eftir júní :P hver veit allavega ekki ég fyrirfram. 

Ég komst inn í verknámið :D rosa ánægð með það, meira að segja þegar ég var heima síðast fór ég á saumastofuna og mátaði vinnufötin sem verða saumuð á mig  fyrir verknámið  eina sem ég þarf að gera er að hringja þegar ég á næst pening og þegar fer að nálgast í næsta haustið hehe þá verður gallinn minn tilbúinn, þarf ég víst líka að fjárfesta  í hvítum skóm sem á að nota aðeins innandyra frekjan í þessu liði eins og það sé ekki nóg að kaupa dýr föt fyrir námið... ;S en ég hlakka til að fara aldrei þessu vant verð með þeim sem ég kannast við úr bóknáminu þannig þetta verður vonandi bara gaman...allavega verður þetta raunverulegra þegar í verklega hlutann er komið.

Ég náði í kött á laugardagskvöldið sem var ómerktur, ógeltur og alltaf að koma inn í vinnuna hjá vinkonu minni sem gekk alls ekki upp þar sem eru fuglar á göngunum og svoleiðis...hann er svo fallegur snjóhvítur stálpaður kettlingur með blá augu og vildi bara kúra í hálsakoti en ég fór með hann í Kattholt í hádeginu í dag þar sem meiri möguleiki væri fyrir eigendurnar að finna hann þar heldur en ég að reyna að finna eigendurnar...en það er hálf tómlegt eftir að gullmolinn fór en það er öllum fyrir bestu þótt erfitt sé :( á seinna eftir að bjarga einhverjum kisa sem virkilega þarfnast heimilis þegar ég er komin í aðra íbúð með fasta vinnu við það sem ég er að læra :) 
lítur svona út 

ekkert smá sætur og góður lítill prins....

En jamm lífið gengur sinn vana gang og ég vinn bara þangað til sumarið er búið held ég :P en hef ekki frá meiru að segja í bili...Blogga meira seinna,,... Kv Rebekka Maren bloggari.

5.16.2012

prófin búin.

Hæ hæ, nú eru prófin mín búin þau fóru bara nokkuð vel ... kláraði sem sé sýklafræði, heilbrigðisfræði, líffæra og lífeðlisfræði 203 og fékk 10 í skólasókn :p og eina auka einingu fyrir það tíhí :) nú bíð ég bara til að fá já eða nei svar um verknám fyrir næsta haust en reyni að hugsa sem minnst um það en verð bara fegin ef ég kemst að strax sem gæti teygst um eitt skólaár..en það kemur bara í ljós..ef ekki þá er planið að vinna og halda mér gangandi þangað til ég kemst í að klára þetta...er staðráðin í því að klára þetta-bara skal..

Ég er búin að vinna í 3 skipti í Hagkaup þar sem ég er byrjuð að vinna yfir sumarið, er mjög ánægð að hafa vinnu, veit ekki hvað ég hefði gert ef það hefði ekki orðið. Fer að vinna á morgunn sem dæmi fullan dag og held ég hafi með mér 3 skó til skiptana útaf mínum blessuðu fótum sem eru svo verkjaðir þar sem þetta er rölt á steingólfi í 8 tíma sem er alls ekki gott fyrir mig en ég er þakklát að hafa vinnu og vonandi venst þetta bara..ekki að marka eftir 3 skipti :) Fólkið er ágætt og ég er að reyna að vera opin og dugleg eins og hægt er...þetta er svona týpísk búðarvinna, fylla á, labba hringi til að athuga hvort vanti eitthvað, skera niður og plasta ávexti, þrífa og já aðallega svoleiðis.

Annars byrjaði ég að prjóna barna sokka með venjulegum hæl í gær og kláraði hann í gærkvöldi hehe bara nokkuð sátt með útkomuna en þeir munu verða fallegri með tímanum þegar ég hef betri æfingu á hælnum hehe, þannig þá kann ég að gera 2 gerðir af sokkum á lítil börn sem er bara mjög fínt og vetlinga :)  útkoman var þessi


En jamm það er svo sem ekki meira að segja í bili, hafið það gott og megi Guð vera með ykkur :)

4.16.2012

nóg af prófum þessa dagana.

Heil og sæl hehe, nú er sko meira en nóg að gera hjá mér þessa dagana og vikurnar. Endalaus próf 2 í þessari viku og 2 í þeirri næstu annað af því er lokapróf :S svo er skil á fyrirlestri sem ég og ein eigum að gera og fjalla svo um fyrir framan bekkinn...no problem there :P 

Svo er planið þann 18 apríl að fara á tónleika aldrei þessu vant og í fyrsta skipti í Hörpuna frægu, vonandi að það sé eins flott og fólk talar um. 

Bíð spennt og í örvæntingu eftir svari um vinnu fyrir sumarið sem tekur soldið á verð ég að játa en mér var sagt að halda í bjartsýnina  -bara að verslunarstjórinn væri ekki farinn að svara neinum um vinnuna.

En já er búin að læra yfir mig af sýklafræði vonandi að það muni ganga vel hjá mér þar sem þetta er síðasta kaflaprófið á önninni í þessum áfanga.... Hef ekki meira í bili að segja, hafið það gott og ég skrifa meira seinna....lovjú all....   :)

4.01.2012

oggu pons

Mér líður vel núna :) með fólkinu mínu, köttum og með nýjann síma hehe...búin að þrá að komast í páskafrí í mjög langann tíma og loksins er það komið og verður eflaust fljótt að líða en þetta er fínt. Nú er bara að njóta þess vel áður en skólinn byrjar aftur. Bless í bili.

2.21.2012

sprengidagur í dag :)

Góðan dag, get ekki annað en sagt að mér líði bara nokkuð vel, nóg að gera í skólanum, og ég bakaði bollur í gær hehe og þær tókust nokkurn veginn hehe en æfingin skapar víst meistarann :) Þessi vika held ég að mun líða hratt. Hugsa að ég geri ekki salt kjöt og baunir, hefði þurft að leggja baunirnar í bleyti yfir einn dag og eiga kjöt en hvorugt er til haha .... en aldrei að vita hvort ég færi þetta um einhverja daga.

Fer í próf í heilbrigðisfræði á fimmtudaginn, þarf víst að leggjast niður og svara spurningum úr köflunum og kannski betra að klára að lesa þá hehehe svo í næstu viku er fyrsta lokaprófið mitt og ekkert smá gildir 50% af lokaeinkunn og ef ég næ því ekki er ég fallin í þeim áfanga, en skal ná þótt lágmarkseinkunn sé um að ræða en hún virkar nú ágæt þessi kennari....svo fer bara mars að koma 8 dagar eftir af febrúar og þetta er rosalegt hehe...

Mikill léttir að vera með minni birgði í huganum, það fer ekki vel með fólk að líða ekki nógu vel en þetta er skref í rétta átt...ég á góða trausta vini sem búa út um allt land sem gerir erfiðara fyrir að hitta þá þótt kannski séu ekkert svo margir en góð eru þau sem eru :) 
En já stundum er gott að getað skrifað niður hugsanir sínar til að létta af huganum og gerir þetta blogg það sannarlega...
Hafið það gott og farið vel með ykkur,,lífið getur verið erfitt en á alltaf að vera þess virði að lifa því....


2.13.2012

kominn 13 feb

hellú :) allt gengur sinn vanagang, er byrjuð í ræktinni hehe sem er bara mjög fínt, fór í myndatöku á föstudaginn hjá vini mínum sem er í ljósmyndaskólanum og þurfti að æfa sig :) passaði litla frænda minn á laugardaginn sem var mjög gaman bara, fór með hann í bíó á puss in boots. Náði þriðja lol 203 prófinu mínu af 10. 

Fór ein í ræktina í dag, vinir mínir komust ekki þannig ég hugsaði bara að ég yrði að fara ein það þýddi ekkert að fara ekki þótt ég hefði engann með mér hehe. Hins vegar hef ég verið dauðþreytt í dag og ekki getað gert neitt eftir skólann og ræktina nema að slaka á eitthvað svo orkulaus en það vonandi skánar með góðum svefn í nótt hehe.

Tíminn líður hratt strax kominn 13 febrúar, ég hef verið á verkjatöflum útaf mígreninu og hef ekki haft mígreni núna í eina og hálfa viku :D sem þýðir að sterkari töflur virka á mig þótt ég sé ekkert rosa hrifin af því að taka töflur yfir höfuð en gerir gæfu muninn fyrir mig.

Er farin að þrá að komast heim til mín á skagaströnd og hitta fólkið mitt spurning hvað maður gerir næstu helgi :P kemur í ljós en hef ekki farið þar sem bensínið er orðið svo fokking dýrt...og bara í dag hækkaði Olís enn meira bensínið og er því dýrasta bensín stöð landsins eins og er.

Ég hef það ágætt, allt eins og vanalega, engar breytingar þannig sé, skólinn bara hlakka til sumarsins og áður en ég veit af verður kominn mai og skólinn búinn :) bíð þangað til hehe.

En jæja hef svo sem ekkert meira að segja. Þannig bless í bili

1.29.2012

janúar alveg að verða búinn

Góða kvöldið allir, þessa helgina hef ég einungis haldið mig innandyra...tekið til, bakað, lært, sofið og haft það gott  svona inná milli ... prufaði að baka uppskrift af rúnstykkjum og þau voru bara mjög góð en gerði þetta bara í bolluformi á meðan ég var að æfa mig, svo í kvöld gerði ég einnig frá grunni folaldagúllas og kartöflumús sem var fínt líka hehe um að gera að æfa sig á meðan maður býr einn.


Ég hef því miður fengist við mígreni alltof lengi sem poppar upp öðru hvoru og gerði það heldur betur á föstudagskvöldið þetta er alveg skelfilegt að vera svona en upp úr þessu ákvað ég að panta tíma hjá augnlækni og mun ég hringja á morgunn til þess, svo er annað mál hvenær ég fæ tíma...sjá hvað kemur út úr því, það er ekki eðlilegt að vera með augnverki alla daga og út úr því mígreni. Einnig er þetta líka verst þegar þessi snjóbirta er.


Ég var með foreldra mína í heimsókn frá kvöldi 17 - morguns 23 janúar og áttum við fínan tíma saman. Mollý kisan þeirra kom með þeim og var hjá mér í pössun á meðan er svo lítil og góð kisa en auðvitað fór hún til baka með þeim hehe...kúrði hjá mér upp í rúmi svo notalegt hjá okkur og malaði á fullu.


Það er nóg að gera í sambandi við skólann og hann hefur gengið en sem komið er, þetta kemur allt saman með kalda vatninu hehe, ég legg mesta áherslu á það að ná þessu háar einkunnir segja ekki til um hvernig manneskja mun vera í því starfi sem maður velur sér þegar að vinnunni sjálfri kemur. Aðal atriðið er að ná og standa sig svo þegar að alvörunni kemur.


En já tíminn líður og janúar þessi fyrsti mánuður nýs árs er að verða búinn aðeins 2 dagar eftir af honum og þá tekur við febrúar, tíminn er víst fljótur að líða sérstaklega þegar maður hefur nóg að gera...með þessum orðum kveð ég í kvöld og vona að þið sofið vel í nótt...góða nótt allir :)

1.15.2012

kominn 15 janúar.

hæhæ nú er komið árið 2012, nýtt upphaf bíður manns alltaf á hverju nýju ári, ákveðin markmið eru sett og reynir maður að uppfylla þau að bestu getu.

Ég er bara í mínu námi og hef það á tilfinningunni að þessi önn verði fljót að líða, erfið, áhugasöm að flestu leiti og þetta skal ganga...

Ef ég tek mér eitthvað fyrir hendur hvað varðar nám þá gengur það upp en tekur stundum aðeins lengri tíma heldur en hjá þeim sem eru bóknámsormar og eiga létt með það, ég er ekki bókaormur, frekar lengi að lesa svona miðað við suma og truflast mjög auðveldlega ef það er einhver auka truflun í umhverfinu á meðan ég er að læra og taka sérstaklega taka próf...

já ekki eru allir jafn heppnir þegar kemur að námi en ef áhuginn er fyrir hendi að þá má ekki gefast upp þótt þetta sé erfitt, þetta kemur að lokum.

Skólinn byrjar ágætlega, er að komast inn í þetta enda bara í raun 1 vika búin af skólanum, helgin hefur verið fín, hef ekki farið neitt út síðan á föstudaginn hehe, horfði ég á allar The lord of the Rings myndirnar í extended útgáfu sem er víst töluvert lengri heldur en þær sem komu í bíó, ,þetta voru sem sé á milli 9-10 klukkutímar sem fóru í að horfa á þessar myndir loksins þegar ég tók mér tíma til þess hehe...góðar myndir og vel gerðar en endalaus slagsmál og stríð en þetta endar mjög vel hehe..alveg ótrúlegt hvað er hægt að gera þetta langdregið að komast með einn hring og eyða honum í eldfjalli hehe þetta er búið loksins og nú get ég sagt að ég hafi séð þessar myndir.

Það er próf hjá mér á þriðjudaginn í fyrsta lol 203 prófinu mínu um blóð þannig að ég ætla að læra undir það í dag eitthvað svona þetta er sem betur fer ekki það langur kafli.

En jamm svona er nú þetta, hafið það gott og ég blogga meira seinna.

12.30.2011

alveg að koma árið 2012

Hér kemur jólagjafa borðið mitt hehe, fékk sem sé góðan leslampa með dagsbirtu peru, þrífót og þráðlausa fjarstýringu, fartölvu bakpoka, snyrtidót, ilmvatn, jólakattastyttu og kattarsokka og fleiri sokka, kjól og bol undir hann, bol, peysu, Harry potter, heyrnatól 

Er bara mjög ánægð með gjafirnar og hef bara liðið vel yfir jólin og hátíðina...búin að ákveða að dissa skólasetninguna 6 janúar og fara bara 8 jan til baka, finnst óþarfi að vera að æða til rvk 5 jan þegar þetta er einungis ef maður þarf að breyta stundatöflu sem ég ætti ekki að þurfa að gera fyrir 4 áfanga...

En jamm allt er fínt, bróðir minn aldrei þessu vant eins og alvöru bræður eiga að haga sér, sem hefur aldrei !!! verið á jólunum...þannig þetta eru bestu jól lífsmíns hvað varðar hann að minnsta kosti...

En jamm fórum í gær og keyptum næst stærsta flugelda kassann + eina tertu þannig morgunndagurinn verður vonandi skemmtilegur...og þá verður víst komið árið 2012 sem er ekkert smá.


12.23.2011

kominn Þorláksmessa

jey þá er þorláksmessa runnin upp og jólin á morgunn, aldrei þessu vant hlakka ég mega mikið til hef það á tilfinningunni að þetta verði góðir dagar...Pabbi minn kom heim af sjónum í gærkvöldi og við náðum í bróðir minn þangað sem hann á heima ..í gær. Sem sé allir komnir saman eins og á að vera hehe...


Dimma mín og Mollý mín sofa hjá mér upp í rúmi til skiptist og kúra sig svo krúttlega ofan í sængina mína og við rífumst um hver fær mestan hluta heheh Grettir er búinn að kúra hjá mér einungis í eitt skipti en hann liggur alltaf hjá mömmu í hennar rúmi...og þetta er svo þægilegt og kósý að hafa þau hjá sér og svo hlýtt líka hehe..


Nú er allt orðið til ég reyndar slepp ekki við að strjúka yfir hurðarnar hef dregið það víst of lengi hahaha en ætli ég geri það ekki eftir skötuna sem byrjar upp úr hálf tólf eins og alltaf hér heima og er í boði togaranna sem er bara nokkuð næs ég reyndar borða ekki skötu en fæ mér alltaf salt fisk og rúgbrauð sem er bara fínt.


allt gott að frétta svo sem skólinn gekk upp og þetta er bara allt í rétta átt...skal ná að komast í gegnum þetta nám...þótt það verði eflaust eitt og eitt fall en það er nú ekki heimsendir maður tekur það þá bara í bakaríið þegar lítið er eftir og þá massa ég afganginn ef eitthvað vesen verður sem ég vona nú ekki...EN jæja nenni eki að skrifa meira, mér líður bara vel og hef það fínt...bless í bili

12.06.2011

6 des kominn

góðan daginn...


ég var að tala við lánasjóð íslenskra námsmanna upp á það hvort að öll gögn væru ekki alveg örugglega komin til þeirra svo ég gæti farið í jólafrí án þess að fá eitthvað bréf að hitt og þetta vanti ...en konan allavega er komin með allt sem þarf frá mér og ýtti á staðfesta :D þannig að nú er bara að sjá hvernig ég sjálf hef staðið mig í prófunum vona bara að ég nái þeim öllum ;) því að þá fæ ég námslánið sem ég sótti um...sem yrði alveg yndislegt þar sem ég hef enga vinnu eftir áramót til að byrja með að minnsta kosti.

Ég hef bara verið í prófum, og inná milli að versla jólagjafir...og ég er búin að versla handa foreldrum mínum og 2 vinkonum mínum fleiri gjafir gef ég ekki formlega fyrir utan "frændsystkini" mín erum búin að kaupa handa þeim :) 

Núna í dag fer ég í strípur og ef ég vil þá klippingu líka og almennilega gert í þetta sinn....ef þetta tekst ekki hjá henni þá læt ég hana lita á mér hárið aftur svart og er hætt þessu haha....maður nennir ekki að henda pening í eitthvað sem kemur engan veginn út eins og ég vil..

það var próf 1 des, 2 des, tvö próf þann 5 des þannig ég á bara eftir eitt próf og það er 12 des...ætla að reyna að dreyfa álaginu yfir dagana og helst vera búin að læra það allra mesta því að mamma mín gæti komið til mín á föstudaginn og þá vil ég vera búin að læra megnið þótt sunnudagurinn færi eitthvað í rest ef ég næ þessu ekki.

en jamm svona er nú þetta ég fer í jólafrí og heim eftir prófið mitt 12 des og verð fyrir norðan þangað til ég fer aftur suður á vorönn skólans...þetta bóknám er stærsta hindrun fyrir mig varðandi nám en svo byrjar verknámið og er spurning hvort ég komist strax inn í það því að það komast bara 12 inn í einu....fyrst er að klára bóknámið og svo kemur hitt í ljós :)

En ekkert meira núna...sjáumst seinna.

11.27.2011

að vera eða ekki að vera hehe

Gott kvöld almenningur. Nú hef ég brallað ýmislegt þessa síðasliðnu daga...

Reyndar er það nú alltaf skólinn og vinnan til skiptist alla virka dag hehe....um helgina fór ég í leikhús og bauð vinkonum mínum 2 með...leikritið var algjör snilld fannst mér allavega get ekki talað fyrir þær...

Fór svo í myndaflipp hér heimafyrir og náði loksins að stilla myndavélina þannig að hún fókusar núna mjög vel en samt í manual :)

Ég er búin að fá eina lokaeinkunn sem er mjög góð og er ég rosa ánægð með hana, vonandi að ég fái gott úr restinni en þeir áfangar tengjast allir lokaprófum :S sem eru ekki mín sterka hlið en ég skal ná þessu... Annars líður mér mjög vel fór ekkert út í dag, lærði í bókfærslu og tók svo eitt myndaflipp hehe það var mjög gaman.

Ég byrja 1 des í fyrsta prófinu, fer svo næst 2 des, 5 des og svo 12 des og kannski 14 des kemur í ljós veit ekki enn hvernig prófið mitt 29 nóv fer þannig að ef ég fæ 7 eða hærra þá þarf ég ekki að taka lokpróf í þeim áfanga en ég er ekki of bjartsýn á að fá það hátt þetta er ansi snúið fyrir mér í þeim áfanga....en ég allavega hlýt að ná lokaprófinu hvort sem ég þarf að taka það í desember eða ekki. Næsta önn verður minna álag en samt erfiðir áfangar eflaust mörg kaflapróf þar sem  ég verð í 2 lol áföngum sem eru endalaus próf í ....
sem sagt heilbrigðisfræði, lol 203 og 202, sýklafræði og þá er það vonandi búið, kannski skyndihjálp en það kemur í ljós bara hvort ég fái mitt frá vma metið eða ekki. Þá tekur svo við aðrar 2 annir næsta haust sem er verklegt en samt er bóklegt með því sem er ekki furðulegt hehe en þá byrjar ballið....

En jamm leikritið Hjónbandssæla var mjög skemmtileg, svo er planið ef ég get leyft mér það að fara á Heimilistónaball 10 des með stelpunum og svo heim í jólafrí að baka, skreyta og gera jólaísinn, laufabrauðið og bara njóta þess að fá gott frí....enn jamm endaði svo við að borða ostagott og hluta af pizzu þetta var svaka gott og ég ætla mér að panta ekki meiri pizzu þangað til ég fer í jólafrí..skal geta það hehe...og drakk sykurlausann djús með :)

En jæja þetta er bara svona hjá mér...skrifa meira seinna.

11.07.2011

7 nóv kominn

hæhæ nú er víst kominn 7 nóvember, allt gengur skít sæmilega í skólanum betur í sumu og verr í öðru....

Helgin var bara leti og hvíld og mér veitti sko ekki af því....var búin á því eftir margra daga vinnu í skólanum....ég reyndar tók til og svoleiðis, eldaði mér pasta rétt sem ég lifði á um helgina hehe....Ég á svo von á elsku pabba mínum í dag hvenær sem hann kemur en eins og vanalega er ég að vinna um leið og ég er búin í skólanum....en þessari vinnu minni líkur 1 des og þá fæ ég loksins meiri tíma til að læra undir lokaprófin reyndar fer ég í fyrsta prófið mitt 1 des en konan í vinnunni vildi ekki leyfa mér að hætta fyrr þannig ég verð að nota bara 29 nóv til að læra fyrir það próf.....Ég verð sko dauðfegin að komast í jólafrí....getað farið heim, notið þess að vera með fjölskyldunni minni og köttunum hehe....æfa mig í lightroom og photoshop, vonandi komast út til að taka myndir til að vinna heima...dunda mér við bakstur og jóla ísgerð er reyndar ekki lengi að því nema við laufabrauðið vona að ég og mamma höfum tíma til þess.....þetta er nefnilega mjög tímafrekt verk að skera út laufabrauð, móta það og steikja...en þetta er svo gott...heheh....

Þetta er svakalega mikil pressa á mig þetta nám og ég er í raun í alltof miklu námi þetta fjarnám 2 áfangar er að fara með mig hef svo lítinn tíma til að læra almennilega undir það og viðurkenni það alveg,...þar sem vinnan eiginlega þyrfti að vera líka lærdóms tími fyrir mig....en er það ekki klárlega...fer bara í argandi börn sem láta mig fá hausverk...því fatta ekki og hlusta ekki þegar maður biður þau um að minnka í sér hávaðann og ef eitthvað er þá er aukið í hann.... :S en ég hitti engann um helgina en það var samt eitthvað svo næs einu sinni að þurfa varla á fætur, reyndar fór ég í nokkrar búðir sem ég varð að fara í en annars var ég mest inni eða eftir allt búðar röltið...

Hér er ringing eins og vanalega og ég hef ekkert komist út að taka myndir, þori því ekki útaf elsku stóru flottu myndavélinni minni sem ég er búin að borga upp eða á 1 greiðslu eftir er ekki alveg en ég held samt að greiðslurnar séu búnar..þannig hún er alveg mín jibbý....

næsta önn verð ég í heilbrigðisfræði, sýklafræði og lol  áföngunum 202 og 203... ég krossa mína fingur að ég nái öllu þótt það sé ekkert endilega sú flottasta einkunn þá er bara að ná þessu svo það sé búið...því að næsta önn eru þessir áfangar og svo næsta haust á eftir fer ég í verknám sem eru 2 annir eða 1 skólaár eins og sagt er og þá er ég búin og vonandi kemst beint í vinnu við það sem ég er að reyna að læra....allt kemur þetta í ljós en ef ég fell í einhverju verð bara að reyna að taka það upp aftur....vil að þetta takist...fjandi erfitt en það hefur allt verið það sem ég hef gert varðandi bóknám þannig ég skal geta þetta þótt ég þurfi kannski að taka eitthvað aftur og ég er mest hrædd um að það sé bókfærslan því ég hvorki skil efnið né kennarann...talar svo hrikalega hratt að ég get ekki bæði meðtekið það sem hún segir bara næ að skrifa það en þetta eru orðadæmi sem ég er hræðileg í og hef alltaf verið þannig það er spurning hvernig þetta fer...reyni að hugsa jákvætt en sumir dagar eru samt ekki góðir og frekar neikvæðir en það líður fljótt hjá....

en jamm svona er mitt líf....ég er yfirleitt í góðu léttu skapi eða reyni það....ég held að allir eigi sína myrku daga....sem yfirleitt lagast næsta dag.....

eigið góða viku :)

10.26.2011

lífið

Hæ hæ allir, langt síðan ég hef bloggað. Eins og vanalega hefur verið ógeðslega mikið að gera hjá mér alveg endalaus próf og meiri próf svo reyndar komu þarna 2 dagar án skóla og það var alveg yndislegt að fá smá frí úr skólanum þrátt fyrir að ég hélt áfram að vinna mína vinnu á leikskólanum sem gekk bara vel þessa daga hehe....

Ég átti að vera með starfssamning fram að áramótum en gerði mér svo grein fyrir því að það hentaði engan veginn fyrir mig .... í fyrsta lagi þarf ég mikla einbeytingu til að læra fyrir lokapróf og með þessari vinnu hefði ég þurft að vera í vinnunni alltaf eftir matinn á meðan ég væri að undirbúa mig fyrir prófin sem ég sá bara ekki glóru í að gera..... Ég fór og ræddi þetta við leikskólastýruna og hún var náttúrulega alls ekki ánægð með þetta og sagði að ég hefði ekkert talað um að fara neitt miklu fyrr í jólafrí en ég bara get ekki unnið með skóla á meðan ég læri undir mjög erfið próf ekki eins og þau séu nú þegar auðveld ....þannig að ég lík minni vinnu hjá leikskólanum þann 1 desember og verður það minn síðasti dagur líklega forever á þessum leikskóla,..

Mér líkaði við lang flesta og andinn í vinnunni er mjög góður en svo urðu miklar breytingar hjá leikskólum Reykjavíkurborgar 1 júlí að mig minnir sem urðu þannig að það komu 2 nýjar stýrur sem er mis erfitt fyrir starfsfólkið enda voru mjög indislegar konur í stjórn þar áður sem ég held að allir sakni mikið, þær voru ekki bara týpískir stjórnendur heldur vinir fólksins líka en það vantar núna þótt þær eflaust reyni en fólk er bara misjafnt.

En ok þannig er nú þetta, ég er búin að ná allavega 2 prófum núna í röð sem ég er mjög ánægð með að hafa náð...ég er ekki gerð til að vera í hörðu bóknámi því miður en þetta er skemmtilegt, krefjandi og mjög erfitt fyrir mig að vera í raun í áföngum sem tengjast náttúrufræðibraut...datt aldrei í hug að ég ! myndi voga mér út í það haha en það gerðist....gengur svona upp og niður en flest gengur og skal áfram ganga og vonandi batna í sumu....

Eftir áramót fer ég í restina af áföngunum sem tengjast minni braut og nú sjáum við bara hvernig mér á eftir að ganga í lokaprófunum, vonandi að ég nái öllu því að sumir áfangarnir eru bara kenndir á annarri hvorri önninni sem þýðir að ef ég fell í allavega 2 áföngum þá þarf ég að býða til næsta haust með að taka þá upp aftur er í þeim í fjarnámi og það er alveg svakalega erfitt og ég viðurkenni það, það þýðir víst ekki að líta fram hjá sínum mesta galla og það er að vera lélegur þegar kemur að bóknámi en auðvitað fer það eftir hvaða áfangi um er að ræða....er betri í sumu en öðru og best í verknámi...maður reynir svo að finna sig í því sem hentar manni...ég horfi á þetta þannig að þegar ég er búin með þetta nám sem mig langar til..held það sé ekkert verra en hvað annað starf og þægilegur vinnutími líka hehe...að þá get ég leyft mér að fara á þau námskeið sem mig langar, hvort sem það varðar ljósmyndun, matargerð eða handarvinnu....þá er ég allavega búin að ná að læra eitthvað, komin með fasta vinnu ef  ég legg nógu hart að mér og kem vel fyrir og svo get ég gert meira fyrir mig þetta auka sem gerir mig ánægða og hlakka ég til að ná þessum markmiðum...

Hins vegar veit ég ekki enn hvort ég finni vinnu eftir áramót erfitt að segja til um það- veit ekki hvort ég treysti mér í að vinna aftur svona með skólanum - ég einfaldlega hef ekki nógu mikinn tíma til að læra eins og ég hefði þurft en þetta var það eina í stöðinni þá....Annað kemur bara í ljós erfitt að hugsa alltof langt fram í tímann ég held þetta muni bara allt ganga upp, verður erfitt tímabil en mun gerast.....

Ég pantaði mér kjól af ebay sem er ekkert smá flottur, býð spennt eftir að fá hann afhentann get ekki beðið því að ég hef aldrei gert svona áður upp á að hann passi nú alveg örugglega en ég reyndi að mæla mig sjálf upp á að sirka vita stærðina þannig hann verður að passa á mig, ætla að nota hann sem jólakjól og fyrir svona skemmtileg móment hehe.... 

En ég er annars bara í góðu skapi enn sem komið er, búin að heyra í mömmu, pabba og systur mömmu og líður bara vel held ég hehe.... Eitt próf er 28 okt hjá mér, annað próf á mánudaginn 31 okt og svo enn eitt próf 3 nóvember já það eru sko endalaus próf í gangi út þessa önn held að sú næsta verði ekki eins erfið fyrir mig....en reyni að vera bjartsýn og ekki neikvæð auðvitað á ég mín móment í því eins og aðrir en ég reyni ávalt að vera jákvæð...það er eina sem hægt er að gera....

En ég ætla að blogga meira seinna áður en ég geri ævisögu mína á einu kvöldi, hafið það gott og vonandi að ykkur líði alltaf vel...kv Rebekka.

10.10.2011

:S

alveg týpískt að verða veikur þegar að vinkona mans kemur í heimsókn síðast í júlí og ég með kvefpest akkúrat þá helgi í okt , hausverk, eyrnaverk, augnverk og að drepast í nefgöngunum og að fara í drullu erfitt próf á miðvikudaginn og erfitt að læra undir próf með hausinn ekki á "réttum" stað...

annars fór ég á kattasýningu á laugardaginn og það var fínt reyndar voru færri kettir held ég núna heldur en á vor sýningunni en þetta var óskup krúttlegt og fallegir ketti...keypti auðvitað kattamat og svo fórum við á hamborgarfabrikkuna og ég enn veik en þurfti að borða eitthvað...ætla að sjá hvernig ég verð í skólanum og ef mér líður ekki vel þá fer ég heim...stundum heldur maður að allt sé í lagi en svo er það bara ennþá þegar maður hefur vakað í smá tíma...

En jamm bless í bili...ætla að gera prufu með skólann en ef það gengur ekki þá verð ég að fara heim undir sæng bara held ég...

10.06.2011

líður betur núna ;)

hæ ég er í betra skapi í dag,...allt gekk nokkuð vel....ef ekkert breytist kemur Ragnheiður mín í heimsókn og verður meðal annars að vinna á kattasýningunni og auðvitað kíkir hún svo í Kattholtið mikla í næstu viku, verst ég er að vinna svo lengi alltaf að þá er búið að loka Kattholti en það verður að hafa það...


Ég fer í próf í fyrramálið, og svo kl 13 á námskeið í líkamsbeitingu haha, ætli það sé ekki verið að láta mann læra hvernig maður að koma fram miðað við þá vinnu sem ég er að reyna að læra ef heppnin verður með mér :P en það kemur í ljós....


svo er það líka á laugardaginn og svo uppáhaldið mitt Kattasýningin..elska þessar sýningar, kaupi mat þar og tek myndir af öllum köttum sem eru þá í búrunum sínum...fer auðvitað með mína stóru myndavél hehe sem er miklu skemmtilegra heldur en að hafa litlu vasavélina mína....bara elska þessa canon 550d vél hún er best....


Nóg að gera og ég reyni að vera jákvæð,,sumir dagar eru bara ömurlegir og aðrir æðislegir....en ég reyni og reyni og geri mitt besta annað þýðir ekkert...get þá minnsta kosti sagt að ég hafi reynt við þetta... en jamm meira er það svo sem ekki.....

10.04.2011

:S

get því miður ekki sagt að minn dagur hafi verið skemmtilegur, hann byrjaði ágætlega, og datt svo niður eftir að ég kom heim...elda hér kjúlla leggi, borðaði 3 gulrætur...og er að deyja úr leiðindum af mér sjálfri vegna skólans...sumir dagar eru bara einfaldlega verri en aðrir...

9.25.2011

átti fínann afmælisdag í gær...

hæhæ og komið sæl í dag, ég átti afmæli í gær og skemmti mér bara bísna vel með Olgu vinkonu minni, við áttum reyndar að hafa hana Öldu okkar líka með okkur en hún veiktist sú elskan....en dagurinn byrjaði snemma hjá mér, með undirbúning fyrir afmælið, byrjaði að þrífa hér allt. Búa til pizzadeig sem heppnaðist svona rosa vel mjúkt og mikið deig hehe og ekki var nú pizzan verri hehe....svo bjó ég til kremið á kökuna og skreytti hana svona eins vel og ég gat með því sem ég hafði hér mér til hjálpar hehe....

Svo kom Olga og við spjölluðum bara um allt þannig lagað en svo langaði mig svo mikið að fara og hitta Gunnar vin okkar, sem átti líka afmæli en er einu ári eldri en ég en sniðugt samt sem áður að eiga sama afmælisdag, eftir það var náð í einhvern vin Olgu hehe og rúntuðum við í smá stund svo fór ég heim, var alveg búin á því eftir allt puðið fyrr um daginn en þetta var fínn dagur sem endaði vel....

Þannig takk fyrir mig í gær, 23 ár komin, mér er oft bent á það að það er voða lítill aldur haha....bless í bili..

9.19.2011

allt og ekkert

helgin var fín,,,ég var bara mjög löt og það var æði hehe þvoði nokkrar þvottavélar reyndar...horfði á Gilmore girls og þetta var bara voða kósý...og eldaði inná milli heheh.....

Ég náði prófi 2 í lol sem er mjög bara fínt...takmarkinu náð haha.....6 próf eftir fyrir utan lokapróf í des....en þetta er fljótt að líða....

en jam svo sem lítið að segja ég á afmæli núna 24 september og þarf að fara að plana eitthvað smá fyrir þann dag halda upp á það með vinum hlakka til þegar þessi vika er búin :) Svo mun litli frændi minn koma og gista hjá mér 30 september og ég hlakka bara nokkuð til þess hehe...nóg að gera hjá mér og ég er alltaf að prufa stillingarnar í myndavélinni minni,,,bara elska þessa vél....það góða við þetta er að í dag er hægt að henda út þeim myndum sem eru hreyfðar eða ljótar annað en einu sinni hehe þá varð maður að virkilega vanda sig....

En jamm langaði bara pínu að blogga um allt og ekkert hehe þannig meira seinna..

9.13.2011

kominn 13 sept :)

Komið þið blessuð og sæl. Nú hefur verið ýmsilegt þannig séð að gera hjá mér hehe, ég fór bísna vel út úr síðustu viku og endaði hana á að fara heim á Skagaströnd, hitta foreldrana, kettina mína og restina af fólkinu mínu sem var heima...Alltaf gott að komast heim og losar um allt stress kom alveg endurnærð til rvk aftur :) 


Dagurinn í gær var langur hehe, fór í skólann og svo í vinnuna, lærði og var að læra til hálf eitt í nótt, geri aðrir betur haha :) en með því þá kláraði ég nánast öll dæmin í bókfærslunni og bæði samdi og gerði glærur fyrir fyrirlesturinn minn í siðfræði fyrir fimmtudaginn þannig núna get ég einbeytt mér af lol prófinu mínu sem er einnig á fimmtudaginn alveg nógu flókin að það séu ekki fyrirlestrar og próf sama daginn en þetta þarfnast mikillar skipulagni :) 


Ég hef samt góða tilfinngu fyrir þessu var að fá fjarnámsáfangana opna í gær en finnst skipulagið eiginlega vera mjög lítið ekki sagt neitt um hvenær sé best að vera búin með hvert og eitt kaflaskipti og þess háttar :S ekki alveg það sem ég hélt eða vissi svo sem ekkert hvernig þetta yrði þar sem ég hef aldrei verið í fjarnámi.....en ég sendi bara kennaranum email og vona að ég fái svar fljótlega haha svo ég skilji nú eitthvað í þessu....þetta eru áfangar sem ég verð að klára á þessari önn en komust ekki inn í töfluna mína vegna vinnunnar, þarf víst að vinna svo ég geti borgað leiguna mína og lifað.....


Þannig þið sjáið að það er meira en nóg að gera hjá mér þessa vikuna, ágætt að vissu marki þá hef ég ekki tíma til að láta mér leiðast :) alltaf góð hlið á móti  hehe.....


En jamm svona er nú tíminn fljótur að líða og er nú kominn 13 september og fer nú að líða að mínum afmælisdegi hehe maður eldist víst það er rétt.... :) enda ef maður væri alltaf á sama aldri held ég að lífið væri frekar leiðinlegt :P en jamm hef það bara nokkuð gott, nóg að gera og vonandi fæ ég smá frítíma um næstu helgi hehe...en jamm hef ekkert meira að segja í bili...Hafið það gott og ég blogga meira seinna. Kv Rebekka.

9.06.2011

fallegur dagur

nóg að gera hjá mér og já ég náði prófinu mínu sem er fyrir öllu, hefði vilja fá hærra en þetta var fyrsta kafla prófið og allt með latneskum orðum þannig það er í raun ekki furða þótt maður sem er ekki góður með minni gagnavart bóklegum greinum og hvað þá latínu að maður fái ekki endilega það hæstsa sem er í boði og auk þess á mörkum lesblindunnar :S 


Í dag er ég búin að fara í lol 103, bókfræðslu 103 og er að bíða eftir að siðfræði byrji...svo mun ég rjúka beint upp í vinnu og vera þar...


En það er fallegt og gott veður úti , farið að hausta maður sér það á litunum hehe, komin þessi fallegu rauðu lauf á sum trén hér,...langar til að taka myndir af þeim sem eru orðin svona falleg á litin....kemur að því.... en jamm hef ekkert meira að segja í bili, meira seinna. Kv Rebekka.

9.05.2011

5 september

jæja þá er ég búin í fyrsta prófinu mínu það gekk svona upp og ofan hehe, en sem betur fer eru 5 hæðstu einkunnirnar af 8 sem gilda þannig ef ég fæ ekki neitt gott út úr þessu prófi að þá dettur það út ef ég fæ gott út úr öllum hinum.

Aðstoðarskólastjórinn æddi inn í stofuna með myndavélina sína og tók myndir af okkur meðan tíminn var. Frekar óþægilegt haha en svo eftir bókfærsluna voru allir beðnir um að fara út því að þar átti að vera hópmyndataka efast stórlega að ég hafi sést haha þetta var óttarlegt kaoz að mín u mati. En núna er ég að fara í siðfræði og vonandi að það gangi betur en hinir tímarnir og svo er skipulagsdagur í vinnunni, engin börn og ég þarf að hafa alla athygli við að hlusta á stýrurnar og eitthvað sambandi við vinnuna og verðandi plan ef það mun einyvern tíman verða að því :P 

En jamm blogga meira seinna, er bara í nokkuð góðu skapi þrátt fyrir  heimþrá...sakna þess að vera heima og knúsa kisurnar mínar og fara með mömmu til ömmu hahah já þetta er svona aðal rútínan heima að fara á milli fólksins míns sem er mér svo mikilvægt :)  En jæja ætla ekki að segja meira í bili... Hafið það gott. Kv Rebekka.

9.04.2011

þetta er draumurinn, langar svo í svona hrærivél.



KitchenAid

Epla Rauð CA

VERР87.990


Lýsing

- 90 ára afmælisútgáfa

- 300 Wött
- Hraðastillingar 1-10

Fylgihlutir:
- Þeytari
- Hrærari
- Hnoðari
- 4.8 lítra skál m. haldfangi
- Hveitibraut

5 ára ábyrgð
Litur
Epla Rauð
Stærð
Hæð: 35,3 cm
Breidd: 22.5 cm
Dýpt: 35,8 cm

Þyngd: 11,3 kg
Heimasíða framleiðanda
KitchenAid


Reyndar langar mig líka til að eiga svona hakkavél á hrærivélina til að getað hakkað sjálf kjötið mitt í staðinn fyrir að kaupa það hakkað út í búð :)

8.28.2011

súld í dag hér í borginni.

lítið búið að gerast hjá mér, er byrjuð í skólanum og svo sem ekki mikið að segja frá honum ennþá.
Bókfærslan og líffæra lífeðlisfræðin virka skemmtileg en eru samt flókin en ég skal ná þessu !!

Helgin er bara búin að vera fín, læra, sofa læra sofa og borða og bara hafa það rólegt og fínt....svo byrjar bara skóli, vinna, læra og borða á morgunn hehe meira er það ekki beint sem ég geri þessa dagana.

Er farin að reyna að borða meira grænmeti, minka matarskammtinn minn og borða meira af ávöxtum þetta er allt að koma, appelsín verður að vera inn í þessu einu sinni um helgi og svo bara sykurlaust gos ef ég hef mikla þörf fyrir því annars verður bara drukkið vatn og meira vatn.... en jám ég er sem sagt á lífi en hef ekki meira að segja í bili....hafið það gott og njótið lífsins.

kv Rebekka.

hér er kvöldmaturinn minn ;)

jæja þetta hér var í matinn hjá mér í kvöld,,,
svínakótiletta, 300 gr grænmeti og 1 kartafla :) auk smá piparsósu.






ekkert smá góður matur


Elska svona mat, grillaði kjötið í ofninum, sauð kartöfluna og grænmetið og er svo búin að borða þetta allt saman :) 

8.22.2011

nokkrar myndir

Hér koma nokkrar myndir frá menningardegi og menningarnótt.



Rebekka og Alda við Hörpuna

Ég 

Harpan


Þetta var svaka gaman.

8.21.2011

Bara allt.

Góða kvöldið, nú hefur verið nóg að gera hjá mér, hann afi minn dó fyrir stuttu eða 9 ágúst og hefur verið nóg að gera í kringum það og er jarðaförin búin. 

Ég náði að krækja mér í einhverja pest ansans vesen með það og búin að sofa mest megnið í dag þangað til ég dreif mig í heimsókn til einnar konu sem var að sína mér námsgögn og svoleiðis. Þau buðu mér svo í þennann ljúfenga mat og ís í eftirrétt hehe...Yndislegt fólk.

Dagurinn á morgunn fer í töflubreytingu, skólabóka innkaup og allt sem tengist skólanum. Ég er bæði kvíðin en hlakka samt til, þetta er soldið öðruvísi nám sem ég er að fara í og vonast ég til að mér muni líka þetta nám, ef svo er þá verð ég útskrifuð eftir sirka 2 skóla ár :) og ætti ég með þessu að getað nokkurnvegin verið seif með starf á flest öllum stöðum..svo er bara hægt að fara á námskeið yfir það sem mér finnst gaman að gera eins og í handavinnu og ljósmyndun. 

Verð að vinna með skólanum þannig þetta er allt að fara að gerast. Námið er kröfuhart og eins gott að læra vel heima og taka vel eftir í tímum. Tiltölulega stutt á milli skóla og vinnu gæti ekki verið betra þannig séð hehe og nú er bara að krossa puttana að mér muni líka vel í skólanum og við kennarana það er mikilvægt.

Fórum niðureftir á menningarnótt, horfðum á flugeldasýninguna og þegar var kveikt á ljósunum í Hörpunni fannst það flott en samt eitthvað vissi ég ekki við hverju ég átti að búast þegar kæmi að því...svo fórum við stelpurnar á Kaffi París og fengum okkur að köku og drykk og svo heim en þá var mér farið að líða svo illa og allir orðnir þreyttir en þetta var hinn fínasti dagur.

En jæja mér er svo illt í augunum og nefinu að ég verð að hætta og leggja frá mér tölvuna....Svona er nú lífið og ég blogga meira seinna.