Hæ hæ allir, langt síðan ég hef bloggað. Eins og vanalega hefur verið ógeðslega mikið að gera hjá mér alveg endalaus próf og meiri próf svo reyndar komu þarna 2 dagar án skóla og það var alveg yndislegt að fá smá frí úr skólanum þrátt fyrir að ég hélt áfram að vinna mína vinnu á leikskólanum sem gekk bara vel þessa daga hehe....
Ég átti að vera með starfssamning fram að áramótum en gerði mér svo grein fyrir því að það hentaði engan veginn fyrir mig .... í fyrsta lagi þarf ég mikla einbeytingu til að læra fyrir lokapróf og með þessari vinnu hefði ég þurft að vera í vinnunni alltaf eftir matinn á meðan ég væri að undirbúa mig fyrir prófin sem ég sá bara ekki glóru í að gera..... Ég fór og ræddi þetta við leikskólastýruna og hún var náttúrulega alls ekki ánægð með þetta og sagði að ég hefði ekkert talað um að fara neitt miklu fyrr í jólafrí en ég bara get ekki unnið með skóla á meðan ég læri undir mjög erfið próf ekki eins og þau séu nú þegar auðveld ....þannig að ég lík minni vinnu hjá leikskólanum þann 1 desember og verður það minn síðasti dagur líklega forever á þessum leikskóla,..
Mér líkaði við lang flesta og andinn í vinnunni er mjög góður en svo urðu miklar breytingar hjá leikskólum Reykjavíkurborgar 1 júlí að mig minnir sem urðu þannig að það komu 2 nýjar stýrur sem er mis erfitt fyrir starfsfólkið enda voru mjög indislegar konur í stjórn þar áður sem ég held að allir sakni mikið, þær voru ekki bara týpískir stjórnendur heldur vinir fólksins líka en það vantar núna þótt þær eflaust reyni en fólk er bara misjafnt.
En ok þannig er nú þetta, ég er búin að ná allavega 2 prófum núna í röð sem ég er mjög ánægð með að hafa náð...ég er ekki gerð til að vera í hörðu bóknámi því miður en þetta er skemmtilegt, krefjandi og mjög erfitt fyrir mig að vera í raun í áföngum sem tengjast náttúrufræðibraut...datt aldrei í hug að ég ! myndi voga mér út í það haha en það gerðist....gengur svona upp og niður en flest gengur og skal áfram ganga og vonandi batna í sumu....
Eftir áramót fer ég í restina af áföngunum sem tengjast minni braut og nú sjáum við bara hvernig mér á eftir að ganga í lokaprófunum, vonandi að ég nái öllu því að sumir áfangarnir eru bara kenndir á annarri hvorri önninni sem þýðir að ef ég fell í allavega 2 áföngum þá þarf ég að býða til næsta haust með að taka þá upp aftur er í þeim í fjarnámi og það er alveg svakalega erfitt og ég viðurkenni það, það þýðir víst ekki að líta fram hjá sínum mesta galla og það er að vera lélegur þegar kemur að bóknámi en auðvitað fer það eftir hvaða áfangi um er að ræða....er betri í sumu en öðru og best í verknámi...maður reynir svo að finna sig í því sem hentar manni...ég horfi á þetta þannig að þegar ég er búin með þetta nám sem mig langar til..held það sé ekkert verra en hvað annað starf og þægilegur vinnutími líka hehe...að þá get ég leyft mér að fara á þau námskeið sem mig langar, hvort sem það varðar ljósmyndun, matargerð eða handarvinnu....þá er ég allavega búin að ná að læra eitthvað, komin með fasta vinnu ef ég legg nógu hart að mér og kem vel fyrir og svo get ég gert meira fyrir mig þetta auka sem gerir mig ánægða og hlakka ég til að ná þessum markmiðum...
Hins vegar veit ég ekki enn hvort ég finni vinnu eftir áramót erfitt að segja til um það- veit ekki hvort ég treysti mér í að vinna aftur svona með skólanum - ég einfaldlega hef ekki nógu mikinn tíma til að læra eins og ég hefði þurft en þetta var það eina í stöðinni þá....Annað kemur bara í ljós erfitt að hugsa alltof langt fram í tímann ég held þetta muni bara allt ganga upp, verður erfitt tímabil en mun gerast.....
Ég pantaði mér kjól af ebay sem er ekkert smá flottur, býð spennt eftir að fá hann afhentann get ekki beðið því að ég hef aldrei gert svona áður upp á að hann passi nú alveg örugglega en ég reyndi að mæla mig sjálf upp á að sirka vita stærðina þannig hann verður að passa á mig, ætla að nota hann sem jólakjól og fyrir svona skemmtileg móment hehe....
En ég er annars bara í góðu skapi enn sem komið er, búin að heyra í mömmu, pabba og systur mömmu og líður bara vel held ég hehe.... Eitt próf er 28 okt hjá mér, annað próf á mánudaginn 31 okt og svo enn eitt próf 3 nóvember já það eru sko endalaus próf í gangi út þessa önn held að sú næsta verði ekki eins erfið fyrir mig....en reyni að vera bjartsýn og ekki neikvæð auðvitað á ég mín móment í því eins og aðrir en ég reyni ávalt að vera jákvæð...það er eina sem hægt er að gera....
En ég ætla að blogga meira seinna áður en ég geri ævisögu mína á einu kvöldi, hafið það gott og vonandi að ykkur líði alltaf vel...kv Rebekka.