12.20.2012

nóg að gera

Hæ hæ, jæja þá er allt gott að frétta, ég náði öllum prófunum mínum :)
Nýju gleraugun mín komu núna í morgunn og ég er búin að ná í þau á pósthúsið - allt annað líf :D

Endalaust flakk á mér, Blönduós, Sauðárkrókur oft, Akureyri, Reykjavík og svo til baka aftur :P

Bíð bara eftir pabba mínum sem kemur heim af sjónum á laugardaginn :D það verður fínt að fá kallinn heim.

Fínt að vera heima og nóg af köttum til að knúsa samtals 5 stykki hehe rosa gaman hjá mér og nó af kattasand til að hreinsa en það fylgir bara....tók Mollý og hreinsaði af henni mesta feldinn og hnúta og rakaði restina af því sem ég náði,,,og nú djöflast ég á henni með linsuvökva sem tekur drulluna úr augunum hennar svona að mestu en þetta þarf að endurtaka oft, byrjaði bara á þessu í gær til að prufa en þarf að halda þessu við á hverjum degi svo að hún verði ekki gul í framan og á loppunum.

Jólin á mánudaginn og þetta verður vonandi bara fínt...

Hér er svo ég með nýju gleraugun mín :D er rosa ánægð að vera komin aftur með þessa þægilegu umgjörð.


12.02.2012

Allt að gerast bara

hæ allir, ójá það er langt síðan ég hef bloggað :) 

Ég er nú bara búin að vera á fullu í náminu mínu...er búin með 2 lokapróf og þeim náð...fer svo í fyrsta des prófið mitt á morgunn þann 3 desember sem er í gervitannagerð...

þetta er allt mjög áhugavert í náminu og ég tel að ég sé loksins komin á mína hillu hvað nám varðar...vona bara að ég nái öllu og að ekkert komi upp á þessari námsleið minni... 

Hins vegar bjargaði ég kettling þann 10 október frá dauða úr Kattholti...Fékk hann nafnið Tumi ...hægt var að telja öll rifbeinin hans og hann var við dauðans dyr...þurfti að fara með hann 3 sinnum til læknis áður en hann náði sér að fullu. Vóg Tumi 820 g fyrst en ég var að enda við að vigta hann núna áðan og vegur hann 2224g :) þannig hann er heldur betur búinn að þyngjast þessi elsku litli kisi.
Hér er mynd af honum sem ég bara varð að taka...litla tungan hans stendur út þegar hann er steinsofandi hehe hvað er sætara en þetta hehe

Annars gengur allt sinn vanagang og ég fer heim 7 desember eftir jólaprófin mín og get ég ekki beðið eftir að fara heim og hitta alla, þar með verða 5 kettir á heimilinu yfir jólin,,algjört stuð :) 

Megið Guð vera með ykkur yfir hátíðirnar sem og ávalt...blogga meira seinna, kv Rebekka.

9.05.2012

jebb jebb kominn september

HÆ HÆ allir...langt síðan ég hef bloggað eitthvað :)

Ég er byrjuð í verknáminu mínum sem er í tanntækni...var fyrstu eina og hálfa vikuna í klinik að skoða allt og aðstoða ef ég fékk hehe,,,

Núna þessa viku er ég á sótthreinsun sem er sæmilegt en ekkert svakalega skemmtilegt en maður þarf að klára þetta svo allt gangi upp hjá tannlæknunum,,vil vera í aðal dæminu hjá sjúklingunum  :P 
Næsta vika verður þannig hehe og svo í lok sept eða byrjun okt fer ég í heimsókn á tannlæknastofu þar sem ég verði í viku að aðstoða :) pressa en verður örugglega fínt :) vona það allavega.

Það kom upp spurning hvort við ættum að hafa eitthvað á hverjum föstudegi eitthvað gott að borða kökur, salöt eða bara það sem við viljum og það var samþykkt þannig að sett var upp plan hvenær hverjar 2 saman eiga að koma með eitthvað við erum 14 sept þannig spurning hvort ég baki köku og eitthvað gott,,,rúlla því nú auðveldlega upp heheheh þótt ég segi nú sjálf frá :) 

Held að þessi önn verði fljót að líða miðað við að þetta er áhugavert, við erum í hvítu fötunum okkar með hlífðargleraugu þegar við á og læknagrímu haha svo við séum ekki að anda beint framan í fólkið í stólnum sem tók smá tíma að venjast því þetta er frekar óþægilegt en mörgu má venjast ;) 

Ég fór á ljósanótt síðustu helgi og þetta var bara fínt,,reyndar alveg hundleiðinlegt veður rigning og rok og ég kvefuð þannig að laugardagsdjammið mitt fór ekki alveg eins og ég ætlaði...fórum heim sirka 23 um kvöldið og svo fór ég ekki meira út þann daginn þar sem ég var dauð algjörlega hósti og kvef ....en sofnaði nú samt ekki fyrr en 03 hahaha svo vaknaði ég um 8 leitið að morgni til og var þá einn vinur minn farinn heim til sín gafst upp og fór en það er allt í lagi, hafði bara pínu áhyggjur hvort hann hafi farið heim eða eitthvað annað en það en svo hafði hann bara farið heim til sín að sofa sem er gott mál .... þannig ég sjálf fór bara og pakkaði niður og keyrði í borgina og sofnaði til 12 og fór svo að passa og var með hann til 18 og fór svo heim drullu kvefuð ....svona var nú það hehe..

En jamm ég keypti mér Hunger games myndina í dag haha gat ekki beðið því hún er svo spennó fór í hana í bíó og hún er fín....horfði á hana og át popp með :P aðeins að slaka á eftir skólann í dag...en það er svo sem ekkert meira að segja í bili..

Hafið það gott og leyfið ykkur að lifa vel :) 

6.25.2012

Prjónaskapur minn upp á síðkastið

hér er það sem ég er að dunda mér við að prjóna :) 


Nýjasti sokkurinn sem ég var að dunda mér að gera eftir vinnu í dag og var að enda við :) svo á bara eftir að gera hinn á móti.
 

Hér er það sem ég prjónaði fyrir nokkrum dögum 


vetlingar sem ég bjó til í stíl við sokka eins og eru hér fyrir ofan -þessir gulu nema hinir voru grænir :) 

Fyrstu sokkarnir mínir með hæl með munstri úr bók hehe rosa ánægð miðað við að þetta var í fyrsta skipti sem ég gerði munstrið en það reyndar sést ekki nógu vel en þetta er það sama og á bláu vetlingunum hér að ofan. 

Hér kemur smá af safninu mínu en grænu vetlingarnir tilheyra því hehe 

En svo á ég reyndar fleiri sokka og vetlinga sem ég hef prjónað í gegnum æfina en það er mis vel gert enda gert á meðan ég var að læra að prjóna hehe en jamm mig langaði bara til að sýna ykkur svona brot af því nýjasta og hér með er það komið í bili :) 

6.24.2012

nóg að gera.

Hæhæ allir...nú er júní alveg að verða búinn að það sem er búið af árinu ótrúlega fljótt að líða....


Allt gengur vel í vinnunni fyrir utan smá svona óþarfa drama hluti hjá sumum en er það ekki á hverjum vinnustað hehehe....ágætis fólk þar sem ég er að vinna með og þetta gengur.


Er núna að fara út á smá rúnt og taka myndir með Gunnari, hef ekki gert svoleiðis í langan tíma ...enda endalaus vinna í 6 daga í röð í hverri viku ....spurning hvað maður gerir hhehe....


Einn lítill drengur fæddist 19 júní hjá vinkonu minni voða sætur hehe gerði smá pakka handa honum sem ég fer með á póstinn á morgunn vona að þeim líki innihaldið hehe...en jamm þetta er svona aðal sem er að gerast...ekkert annað í bili....blogga meira seinna..bæjó.

6.04.2012

lífið

well halló allir,,,,nú er ég byrjuð að vinna í Hagkaup í Kringlunni, vinn alla daga nema sunnudaga, alveg meira en nóg að gera.....er bara ánægð að hafa fengið vinnu yfir sumarið þannig vonandi get ég borgað mína reikninga og átt smá afgang eftir júní :P hver veit allavega ekki ég fyrirfram. 

Ég komst inn í verknámið :D rosa ánægð með það, meira að segja þegar ég var heima síðast fór ég á saumastofuna og mátaði vinnufötin sem verða saumuð á mig  fyrir verknámið  eina sem ég þarf að gera er að hringja þegar ég á næst pening og þegar fer að nálgast í næsta haustið hehe þá verður gallinn minn tilbúinn, þarf ég víst líka að fjárfesta  í hvítum skóm sem á að nota aðeins innandyra frekjan í þessu liði eins og það sé ekki nóg að kaupa dýr föt fyrir námið... ;S en ég hlakka til að fara aldrei þessu vant verð með þeim sem ég kannast við úr bóknáminu þannig þetta verður vonandi bara gaman...allavega verður þetta raunverulegra þegar í verklega hlutann er komið.

Ég náði í kött á laugardagskvöldið sem var ómerktur, ógeltur og alltaf að koma inn í vinnuna hjá vinkonu minni sem gekk alls ekki upp þar sem eru fuglar á göngunum og svoleiðis...hann er svo fallegur snjóhvítur stálpaður kettlingur með blá augu og vildi bara kúra í hálsakoti en ég fór með hann í Kattholt í hádeginu í dag þar sem meiri möguleiki væri fyrir eigendurnar að finna hann þar heldur en ég að reyna að finna eigendurnar...en það er hálf tómlegt eftir að gullmolinn fór en það er öllum fyrir bestu þótt erfitt sé :( á seinna eftir að bjarga einhverjum kisa sem virkilega þarfnast heimilis þegar ég er komin í aðra íbúð með fasta vinnu við það sem ég er að læra :) 
lítur svona út 

ekkert smá sætur og góður lítill prins....

En jamm lífið gengur sinn vana gang og ég vinn bara þangað til sumarið er búið held ég :P en hef ekki frá meiru að segja í bili...Blogga meira seinna,,... Kv Rebekka Maren bloggari.

5.16.2012

prófin búin.

Hæ hæ, nú eru prófin mín búin þau fóru bara nokkuð vel ... kláraði sem sé sýklafræði, heilbrigðisfræði, líffæra og lífeðlisfræði 203 og fékk 10 í skólasókn :p og eina auka einingu fyrir það tíhí :) nú bíð ég bara til að fá já eða nei svar um verknám fyrir næsta haust en reyni að hugsa sem minnst um það en verð bara fegin ef ég kemst að strax sem gæti teygst um eitt skólaár..en það kemur bara í ljós..ef ekki þá er planið að vinna og halda mér gangandi þangað til ég kemst í að klára þetta...er staðráðin í því að klára þetta-bara skal..

Ég er búin að vinna í 3 skipti í Hagkaup þar sem ég er byrjuð að vinna yfir sumarið, er mjög ánægð að hafa vinnu, veit ekki hvað ég hefði gert ef það hefði ekki orðið. Fer að vinna á morgunn sem dæmi fullan dag og held ég hafi með mér 3 skó til skiptana útaf mínum blessuðu fótum sem eru svo verkjaðir þar sem þetta er rölt á steingólfi í 8 tíma sem er alls ekki gott fyrir mig en ég er þakklát að hafa vinnu og vonandi venst þetta bara..ekki að marka eftir 3 skipti :) Fólkið er ágætt og ég er að reyna að vera opin og dugleg eins og hægt er...þetta er svona týpísk búðarvinna, fylla á, labba hringi til að athuga hvort vanti eitthvað, skera niður og plasta ávexti, þrífa og já aðallega svoleiðis.

Annars byrjaði ég að prjóna barna sokka með venjulegum hæl í gær og kláraði hann í gærkvöldi hehe bara nokkuð sátt með útkomuna en þeir munu verða fallegri með tímanum þegar ég hef betri æfingu á hælnum hehe, þannig þá kann ég að gera 2 gerðir af sokkum á lítil börn sem er bara mjög fínt og vetlinga :)  útkoman var þessi


En jamm það er svo sem ekki meira að segja í bili, hafið það gott og megi Guð vera með ykkur :)

4.16.2012

nóg af prófum þessa dagana.

Heil og sæl hehe, nú er sko meira en nóg að gera hjá mér þessa dagana og vikurnar. Endalaus próf 2 í þessari viku og 2 í þeirri næstu annað af því er lokapróf :S svo er skil á fyrirlestri sem ég og ein eigum að gera og fjalla svo um fyrir framan bekkinn...no problem there :P 

Svo er planið þann 18 apríl að fara á tónleika aldrei þessu vant og í fyrsta skipti í Hörpuna frægu, vonandi að það sé eins flott og fólk talar um. 

Bíð spennt og í örvæntingu eftir svari um vinnu fyrir sumarið sem tekur soldið á verð ég að játa en mér var sagt að halda í bjartsýnina  -bara að verslunarstjórinn væri ekki farinn að svara neinum um vinnuna.

En já er búin að læra yfir mig af sýklafræði vonandi að það muni ganga vel hjá mér þar sem þetta er síðasta kaflaprófið á önninni í þessum áfanga.... Hef ekki meira í bili að segja, hafið það gott og ég skrifa meira seinna....lovjú all....   :)

4.01.2012

oggu pons

Mér líður vel núna :) með fólkinu mínu, köttum og með nýjann síma hehe...búin að þrá að komast í páskafrí í mjög langann tíma og loksins er það komið og verður eflaust fljótt að líða en þetta er fínt. Nú er bara að njóta þess vel áður en skólinn byrjar aftur. Bless í bili.

2.21.2012

sprengidagur í dag :)

Góðan dag, get ekki annað en sagt að mér líði bara nokkuð vel, nóg að gera í skólanum, og ég bakaði bollur í gær hehe og þær tókust nokkurn veginn hehe en æfingin skapar víst meistarann :) Þessi vika held ég að mun líða hratt. Hugsa að ég geri ekki salt kjöt og baunir, hefði þurft að leggja baunirnar í bleyti yfir einn dag og eiga kjöt en hvorugt er til haha .... en aldrei að vita hvort ég færi þetta um einhverja daga.

Fer í próf í heilbrigðisfræði á fimmtudaginn, þarf víst að leggjast niður og svara spurningum úr köflunum og kannski betra að klára að lesa þá hehehe svo í næstu viku er fyrsta lokaprófið mitt og ekkert smá gildir 50% af lokaeinkunn og ef ég næ því ekki er ég fallin í þeim áfanga, en skal ná þótt lágmarkseinkunn sé um að ræða en hún virkar nú ágæt þessi kennari....svo fer bara mars að koma 8 dagar eftir af febrúar og þetta er rosalegt hehe...

Mikill léttir að vera með minni birgði í huganum, það fer ekki vel með fólk að líða ekki nógu vel en þetta er skref í rétta átt...ég á góða trausta vini sem búa út um allt land sem gerir erfiðara fyrir að hitta þá þótt kannski séu ekkert svo margir en góð eru þau sem eru :) 
En já stundum er gott að getað skrifað niður hugsanir sínar til að létta af huganum og gerir þetta blogg það sannarlega...
Hafið það gott og farið vel með ykkur,,lífið getur verið erfitt en á alltaf að vera þess virði að lifa því....


2.13.2012

kominn 13 feb

hellú :) allt gengur sinn vanagang, er byrjuð í ræktinni hehe sem er bara mjög fínt, fór í myndatöku á föstudaginn hjá vini mínum sem er í ljósmyndaskólanum og þurfti að æfa sig :) passaði litla frænda minn á laugardaginn sem var mjög gaman bara, fór með hann í bíó á puss in boots. Náði þriðja lol 203 prófinu mínu af 10. 

Fór ein í ræktina í dag, vinir mínir komust ekki þannig ég hugsaði bara að ég yrði að fara ein það þýddi ekkert að fara ekki þótt ég hefði engann með mér hehe. Hins vegar hef ég verið dauðþreytt í dag og ekki getað gert neitt eftir skólann og ræktina nema að slaka á eitthvað svo orkulaus en það vonandi skánar með góðum svefn í nótt hehe.

Tíminn líður hratt strax kominn 13 febrúar, ég hef verið á verkjatöflum útaf mígreninu og hef ekki haft mígreni núna í eina og hálfa viku :D sem þýðir að sterkari töflur virka á mig þótt ég sé ekkert rosa hrifin af því að taka töflur yfir höfuð en gerir gæfu muninn fyrir mig.

Er farin að þrá að komast heim til mín á skagaströnd og hitta fólkið mitt spurning hvað maður gerir næstu helgi :P kemur í ljós en hef ekki farið þar sem bensínið er orðið svo fokking dýrt...og bara í dag hækkaði Olís enn meira bensínið og er því dýrasta bensín stöð landsins eins og er.

Ég hef það ágætt, allt eins og vanalega, engar breytingar þannig sé, skólinn bara hlakka til sumarsins og áður en ég veit af verður kominn mai og skólinn búinn :) bíð þangað til hehe.

En jæja hef svo sem ekkert meira að segja. Þannig bless í bili

1.29.2012

janúar alveg að verða búinn

Góða kvöldið allir, þessa helgina hef ég einungis haldið mig innandyra...tekið til, bakað, lært, sofið og haft það gott  svona inná milli ... prufaði að baka uppskrift af rúnstykkjum og þau voru bara mjög góð en gerði þetta bara í bolluformi á meðan ég var að æfa mig, svo í kvöld gerði ég einnig frá grunni folaldagúllas og kartöflumús sem var fínt líka hehe um að gera að æfa sig á meðan maður býr einn.


Ég hef því miður fengist við mígreni alltof lengi sem poppar upp öðru hvoru og gerði það heldur betur á föstudagskvöldið þetta er alveg skelfilegt að vera svona en upp úr þessu ákvað ég að panta tíma hjá augnlækni og mun ég hringja á morgunn til þess, svo er annað mál hvenær ég fæ tíma...sjá hvað kemur út úr því, það er ekki eðlilegt að vera með augnverki alla daga og út úr því mígreni. Einnig er þetta líka verst þegar þessi snjóbirta er.


Ég var með foreldra mína í heimsókn frá kvöldi 17 - morguns 23 janúar og áttum við fínan tíma saman. Mollý kisan þeirra kom með þeim og var hjá mér í pössun á meðan er svo lítil og góð kisa en auðvitað fór hún til baka með þeim hehe...kúrði hjá mér upp í rúmi svo notalegt hjá okkur og malaði á fullu.


Það er nóg að gera í sambandi við skólann og hann hefur gengið en sem komið er, þetta kemur allt saman með kalda vatninu hehe, ég legg mesta áherslu á það að ná þessu háar einkunnir segja ekki til um hvernig manneskja mun vera í því starfi sem maður velur sér þegar að vinnunni sjálfri kemur. Aðal atriðið er að ná og standa sig svo þegar að alvörunni kemur.


En já tíminn líður og janúar þessi fyrsti mánuður nýs árs er að verða búinn aðeins 2 dagar eftir af honum og þá tekur við febrúar, tíminn er víst fljótur að líða sérstaklega þegar maður hefur nóg að gera...með þessum orðum kveð ég í kvöld og vona að þið sofið vel í nótt...góða nótt allir :)

1.15.2012

kominn 15 janúar.

hæhæ nú er komið árið 2012, nýtt upphaf bíður manns alltaf á hverju nýju ári, ákveðin markmið eru sett og reynir maður að uppfylla þau að bestu getu.

Ég er bara í mínu námi og hef það á tilfinningunni að þessi önn verði fljót að líða, erfið, áhugasöm að flestu leiti og þetta skal ganga...

Ef ég tek mér eitthvað fyrir hendur hvað varðar nám þá gengur það upp en tekur stundum aðeins lengri tíma heldur en hjá þeim sem eru bóknámsormar og eiga létt með það, ég er ekki bókaormur, frekar lengi að lesa svona miðað við suma og truflast mjög auðveldlega ef það er einhver auka truflun í umhverfinu á meðan ég er að læra og taka sérstaklega taka próf...

já ekki eru allir jafn heppnir þegar kemur að námi en ef áhuginn er fyrir hendi að þá má ekki gefast upp þótt þetta sé erfitt, þetta kemur að lokum.

Skólinn byrjar ágætlega, er að komast inn í þetta enda bara í raun 1 vika búin af skólanum, helgin hefur verið fín, hef ekki farið neitt út síðan á föstudaginn hehe, horfði ég á allar The lord of the Rings myndirnar í extended útgáfu sem er víst töluvert lengri heldur en þær sem komu í bíó, ,þetta voru sem sé á milli 9-10 klukkutímar sem fóru í að horfa á þessar myndir loksins þegar ég tók mér tíma til þess hehe...góðar myndir og vel gerðar en endalaus slagsmál og stríð en þetta endar mjög vel hehe..alveg ótrúlegt hvað er hægt að gera þetta langdregið að komast með einn hring og eyða honum í eldfjalli hehe þetta er búið loksins og nú get ég sagt að ég hafi séð þessar myndir.

Það er próf hjá mér á þriðjudaginn í fyrsta lol 203 prófinu mínu um blóð þannig að ég ætla að læra undir það í dag eitthvað svona þetta er sem betur fer ekki það langur kafli.

En jamm svona er nú þetta, hafið það gott og ég blogga meira seinna.