Hæ hæ allir, þetta er nú búið að vera meiri dagarnir hjá mér, vill svo til að ég fékk ekki áframhaldandi vinnu á þessari tannlæknastofu vegna þess að ég er ekki nógu sjarmerandi, ágætt að vita það. Þannig ég er atvinnulaus. En ég er ekki verkefnalaus þrátt fyrir þennan missi.
Ég hins vegar varð 25 ára núna þann 24 september síðastliðinn og sama dag byrjaði ég hjá kíróprakter sem er að gera mjög góða hluti fyrir bakið og hálsinn minn, alger snillingur þessi maður. Verð í því í sirka 3 vikur og síðan kemur í ljós hvað kemur út úr þessu öllu saman. Að minnsta kosti eru bólgurnar mínar búnar minnka heilmikið og ég hef ekki tekið inn 1 verkjatöflu :) þannig þetta er heldur betur að virka.
Fékk litla 9 ára frænda minn í gistingu á föstudaginn og það var svaka gaman hjá okkur þar sem ég hef ekki hitt hann mjög lengi, daginn eftir hélt ég upp á afmælið mitt með 5 vinkonum, eldaði lambalæri, brúnaðar kartöflur, grænar og gular baunir, gos, sósa og afmæliskaka ásamt rjóma...þetta heppnaðist mjög vel allt saman.
Þetta er það sem ég hef verið að gera, fuglarnir mínir hafa það svaka gott og ungarnir braggast vel og farnir að éta næstum því allir sjálfir og kisurnar eru ofdekraðar eins og vanalega hehe...en lífið er nokkuð gott bara :)
Kattasýning næstu helgi og síðan er bara að reyna að njóta lífsins :)