Góða kvöldið allir, þessa helgina hef ég einungis haldið mig innandyra...tekið til, bakað, lært, sofið og haft það gott svona inná milli ... prufaði að baka uppskrift af rúnstykkjum og þau voru bara mjög góð en gerði þetta bara í bolluformi á meðan ég var að æfa mig, svo í kvöld gerði ég einnig frá grunni folaldagúllas og kartöflumús sem var fínt líka hehe um að gera að æfa sig á meðan maður býr einn.
Ég hef því miður fengist við mígreni alltof lengi sem poppar upp öðru hvoru og gerði það heldur betur á föstudagskvöldið þetta er alveg skelfilegt að vera svona en upp úr þessu ákvað ég að panta tíma hjá augnlækni og mun ég hringja á morgunn til þess, svo er annað mál hvenær ég fæ tíma...sjá hvað kemur út úr því, það er ekki eðlilegt að vera með augnverki alla daga og út úr því mígreni. Einnig er þetta líka verst þegar þessi snjóbirta er.
Ég var með foreldra mína í heimsókn frá kvöldi 17 - morguns 23 janúar og áttum við fínan tíma saman. Mollý kisan þeirra kom með þeim og var hjá mér í pössun á meðan er svo lítil og góð kisa en auðvitað fór hún til baka með þeim hehe...kúrði hjá mér upp í rúmi svo notalegt hjá okkur og malaði á fullu.
Það er nóg að gera í sambandi við skólann og hann hefur gengið en sem komið er, þetta kemur allt saman með kalda vatninu hehe, ég legg mesta áherslu á það að ná þessu háar einkunnir segja ekki til um hvernig manneskja mun vera í því starfi sem maður velur sér þegar að vinnunni sjálfri kemur. Aðal atriðið er að ná og standa sig svo þegar að alvörunni kemur.
En já tíminn líður og janúar þessi fyrsti mánuður nýs árs er að verða búinn aðeins 2 dagar eftir af honum og þá tekur við febrúar, tíminn er víst fljótur að líða sérstaklega þegar maður hefur nóg að gera...með þessum orðum kveð ég í kvöld og vona að þið sofið vel í nótt...góða nótt allir :)
1.29.2012
1.15.2012
kominn 15 janúar.
hæhæ nú er komið árið 2012, nýtt upphaf bíður manns alltaf á hverju nýju ári, ákveðin markmið eru sett og reynir maður að uppfylla þau að bestu getu.
Ég er bara í mínu námi og hef það á tilfinningunni að þessi önn verði fljót að líða, erfið, áhugasöm að flestu leiti og þetta skal ganga...
Ef ég tek mér eitthvað fyrir hendur hvað varðar nám þá gengur það upp en tekur stundum aðeins lengri tíma heldur en hjá þeim sem eru bóknámsormar og eiga létt með það, ég er ekki bókaormur, frekar lengi að lesa svona miðað við suma og truflast mjög auðveldlega ef það er einhver auka truflun í umhverfinu á meðan ég er að læra og taka sérstaklega taka próf...
Ef ég tek mér eitthvað fyrir hendur hvað varðar nám þá gengur það upp en tekur stundum aðeins lengri tíma heldur en hjá þeim sem eru bóknámsormar og eiga létt með það, ég er ekki bókaormur, frekar lengi að lesa svona miðað við suma og truflast mjög auðveldlega ef það er einhver auka truflun í umhverfinu á meðan ég er að læra og taka sérstaklega taka próf...
já ekki eru allir jafn heppnir þegar kemur að námi en ef áhuginn er fyrir hendi að þá má ekki gefast upp þótt þetta sé erfitt, þetta kemur að lokum.
Skólinn byrjar ágætlega, er að komast inn í þetta enda bara í raun 1 vika búin af skólanum, helgin hefur verið fín, hef ekki farið neitt út síðan á föstudaginn hehe, horfði ég á allar The lord of the Rings myndirnar í extended útgáfu sem er víst töluvert lengri heldur en þær sem komu í bíó, ,þetta voru sem sé á milli 9-10 klukkutímar sem fóru í að horfa á þessar myndir loksins þegar ég tók mér tíma til þess hehe...góðar myndir og vel gerðar en endalaus slagsmál og stríð en þetta endar mjög vel hehe..alveg ótrúlegt hvað er hægt að gera þetta langdregið að komast með einn hring og eyða honum í eldfjalli hehe þetta er búið loksins og nú get ég sagt að ég hafi séð þessar myndir.
Það er próf hjá mér á þriðjudaginn í fyrsta lol 203 prófinu mínu um blóð þannig að ég ætla að læra undir það í dag eitthvað svona þetta er sem betur fer ekki það langur kafli.
En jamm svona er nú þetta, hafið það gott og ég blogga meira seinna.
Subscribe to:
Comments (Atom)