9.12.2013

Jæja gott fólk long time no seen :)

Hæ allir, vá ég var svo lengi að komast inn á bloggið mitt núna aftur því ég hef ekki farið inn á það mjög lengi.
Það hefur nú ýmislegt gerst á þessum tíma sem ég var hér inná síðast hehe, var í tanntækninámi og er útskrifuð úr því 24 mai 2013 og gekk þetta nokkuð vel...síðan fór sumarið bara í að ég vann í heila 16 daga á leikskóla sem stuðningsfulltrúi með einhverfan útlenskan dreng og annan útlenskan sem átti eftir að fá greiningu..samkvæmt stjórnanda þá var ég ekki að henta í það starf og já það bara gekk ekki upp...hins vegar ákvað ég að gefast nú ekki upp á að finna mér vinnu sem Tanntæknir fyrst ég var nú búin að leggja það á mig þetta blessaða nám sem var misjafnlega erfitt fyrir mig þar sem ég á við námsörðugleika að stríða upp að vissu marki þannig að ég fer þetta allt á þrjóskunni og viljanum og á endanum gekk þetta upp :) 

Ég flutti frá staðnum sem ég bjó í þar sem ég mátti ekki vera þar lengur vegna þess að ég var ekki í námi fyrst ég útskrifaðist úr þessu þannig ég flutti í aðra íbúð í júní og er það núna og líður vel. Bý þar ásamt 2 kisunum mínum og fuglum sem eru með 4 unga hjá sér núna ekkert smá sætir...svo gaman að fylgjast með þeim frá því þeir komu úr eggi og stækkun þeirra á hverjum degi hef svo gaman af þessu, núna í dag tók ég svo hreiðrið þeirra út úr búrinu svo að foreldrarnir færu ekki að huga að öðru varpi strax og hætta að gefa sínum eigin ungum mat og athygli. 

Ég hef verið að reyna að finna mér tanntækni vinnu hjá tannlæknastofu og var orðin vonlítil að þetta myndi gerast á þessu ári fyrir mig, ég sendi email út um allt og ekkert virtist ætla að ganga, fékk engin svör eða þegar ég fékk þessi fáu svör sem fengin voru að þá varð ekkert meira úr því,,þangað til í síðustu viku fór eitthva að gerast, ég var boðuð í 2 viðtöl hjá sitthvorri tannlæknastofunni og mér leist bara nokkuð vel á en var stressuð hehe sem er svo sem ekkert furðulegt, en ég fékk símtal á sunnudaginn og var boðið að koma í prufu og ég alveg himinlifandi yfir þessu boði og þáði það áður en ég fór heim var mér boðið í prufu 2 og ég bara já vá auðvitað þigg ég það...síðan í gær áður en prufunni lauk var ég spurð hvernig mér líkaði að vera þarna og hvort ég vildi koma að vinna hjá þeim í 3 mánuði til að fá reynslu og vita hvernig mér myndi líka hjá þeim og þau við mig og ég er svo ánægð að ég sagði já við þessu boði og er því komin með vinnu hjá þeim í 3 mánuði til að byrja með og ef mér líkar og þeim líka að þá fæ ég að vera lengur en 3 mánuðir fyrst og ég tek einn dag í einu...þetta er alveg mergjað gott sko...þannig að ég tók mig á um daginn og ákvað að líta jákvætt á hlutina og reyna að hugsa jákvætt og síðan gerist þetta og mér líður svo vel yfir þessu, þannig já lífið er gott og allt í áttina :) ég þakka fyrir mig, aldrei þessu vant er ég sátt við lífið og allt virðist ætla að ganga upp :) mottóið er bara að vera duglegur og gefast ekki upp.

No comments:

Post a Comment