Heil og sæl hehe, nú er sko meira en nóg að gera hjá mér þessa dagana og vikurnar. Endalaus próf 2 í þessari viku og 2 í þeirri næstu annað af því er lokapróf :S svo er skil á fyrirlestri sem ég og ein eigum að gera og fjalla svo um fyrir framan bekkinn...no problem there :P
Svo er planið þann 18 apríl að fara á tónleika aldrei þessu vant og í fyrsta skipti í Hörpuna frægu, vonandi að það sé eins flott og fólk talar um.
Bíð spennt og í örvæntingu eftir svari um vinnu fyrir sumarið sem tekur soldið á verð ég að játa en mér var sagt að halda í bjartsýnina -bara að verslunarstjórinn væri ekki farinn að svara neinum um vinnuna.
En já er búin að læra yfir mig af sýklafræði vonandi að það muni ganga vel hjá mér þar sem þetta er síðasta kaflaprófið á önninni í þessum áfanga.... Hef ekki meira í bili að segja, hafið það gott og ég skrifa meira seinna....lovjú all.... :)