7.30.2011

Hér er maturinn sem ég eldaði mér í kvöld, 300 gr af grænmeti á disknum þarna með :)



Já þetta var ekkert smá gott hehe 

Góð byrjun á fínum degi

hæhæ allir, ekkert að gera hér hjá mér svo sem en ég er að bara að elda kjúkling handa mér einni hehe, svo verða djúpsteiktar franskar, sósa og mjög líklega grænmeti með :) hlakka bara til að borða þótt ég sé ein, mun þá bara eiga afgang fyrir morgundaginn hehe..

Fór í Bónus og verslaði inn og er búin að koma öllu fyrir, drap allar kóngulær á svölunum mínum og eyddi vefjunum þeirra, þoli ekki þessar pöddur endalaust :S  

Annars hef ég það bara mjög gott já já er búin að vera að hlusta á Bylgjuna á Hemma Gunn og félaga, kemur manni alltaf í gott skap og hvað þá yfir versló hehe :) Nú er Siggi Hlö spila og hann er alltaf með sínu góðu lög.....

Eitthvað svo skemmtilegt við lagið sem hljómar svona, viðlagið allavega.....NÝ DÖNSK - FRAM Á NÓTT....

hvernig kemst ég inn þegar allt er orðið hljótt, þá vera með um sinn að djamma fram á nótt, hvernig kemst ég inn þegar allt er orðið hljótt, þá vera með um sinn að djamma...

Er í partý stuði bara hehe bara spurning hvernig maður eyðir kvöldinu :) ?


7.29.2011

Aðfaranótt föstudags

komið þið blessuð og sæl, þá er víst kominn 29 júlí og aðeins 2 dagar eftir af þessum mánuði og þá er víst kominn ágúst...pæliðið í þessu marrr....tíminn flýgur áfram....

verð að játa það að ég er nú bara nokkuð þreytt, var að passa litla strákinn og hann vildi ekki sofna strax haha mátti svo sem búast við því en það tókst að lokum :D tíhí :P rosa ánægð hehe...svo var ég að gera 1 tilraun að kenna Öldu að prjóna ...lykkjur eina slétta eina brugðna hehe á að verða svo vetlingur að lokum þegar verður komin regla á lykkjurnar og munstrið hehe þá ráðumst við á vetlingargerðina með 4 prjónum hehe...þetta er í fyrsta sinn sem ég prufa að kenna einhverjum að prjóna en sjáum til hvernig þetta mun ganga hehe en ég er rosa stolt af henni að þora að prufa þetta.

Við bökuðum karamelluköku í dag mér fannst hún svaka góð hehe, týpísk svona krakka kaka og með þeyttum rjóma með hehehe heimagerð karamella finnst mér lang best hehe...en er að nýta tímann og borða allann "fjandann" áður en ég fer að taka mig svakalega vel og mikið á en nýt þess aðeins núna áður en það verður :P 

Annars er ekkert planað fyrir morgundaginn nema Alda gistir hjá mér núna og við ætlum svo að reyna að prjóna eitthvað á morgunn, spurning hvort það verði hægt að byrja á einu stykki vetling :Ð ??? kemur í ljós en það er aldrei að vita samt :) 

En ég er alltof þreytt til að hugsa meira hvað ég get skrifað um þannig ég skrifa meira seinna...verið þið blessuð og sæl og góða nótt.


7.27.2011

27.7.2011

Dagurinn í dag var mjög fínn, ég fór til litla drengsins og fór svo með hann heim og hann var svo indæll hér hjá mér og steinsofnaði svo hehe algjört krútt :) 

Annars hef ég það bara fínt allt gengur vel og mér finnst tíminn fljúga áfram og bara fatta eiginlega ekki hvað varð um alla hina dagana sem eru búnir af árinu. Ég eldaði mér aspas súpu og hamingju eggin sem Gunna frænka gaf mér hehe mjög góð og sauð þau svo eggjarauðan væri lin nammi namm hehe.....

Ég elska að horfa á private practice sem er núna á RÚV á hverjum miðvikudegi ef enginn fótbolti eða önnur truflun er á dagskránni....og er núna bara að njóta þess að vera til, geri allt til að reyna að vera jákvæð og líða vel og geri mitt besta í að hlusta á aðra líka ( vini mína sérstaklega) er með í gangi skemmtilega róandi tónlist og bíð eftir morgundeginum ætla þá að njóta dagsins með Öldu vinkonu minni sem mér þykir mjög vænt um, við bara smullum saman þegar að önnur vinkona okkar var búin að kynna okkur fyrir hvor annarri :) guði sé lof að hún gerði það hehehe

Við ætlum að baka karamellu köku frá grunni og þetta er svo ofboðslega gott, að njóta þess áður en ég dríf mig í megrun hehehe verð víst að fara að taka mig á þótt öðrum finnist ég ekkert svakaleg þá veit maður það víst best :) 

svo kannski það er ekki alveg vitað fer ég til litla kúts annaðkvöld en það kemur í ljós á morgunn...en annars er lífið bara nokkuð gott þrátt fyrir peningavesen sem kemur þegar fartölvuskjáir bila, eða bíllinn mans bilar þetta kostar víst allt pening en þannig er lífið- það er einn peningur, hamingja, ást, vinátta, sorg og bara allur pakkinn og það er svo mikilvægt að reyna að njóta þess að vera til...hver og einn gerir það svo á sinn hátt, auðvitað koma þættir inn sem maður hefði viljað að væru ekki til en við getum ekki breytt því nema að þróa þekkingu og dreyfa henni út um allan heim....svo er bara spurning hvort fólk tekur það til sín og lærir eitthvað á þessari visku.

En jæja þetta er víst komið nóg í dag...ég kveð að sinni þangað til ég hef þörf á að tjá mig meira hehe....hafið það geggjað  gott allir sem lesa þetta....bless í bili. kv Rebekka.

7.26.2011

Lagið - Allt sem ég á

Ég er rosalega hrifin af þessu lagi og hvað þá textanum ofboðslega fallegt lag.

ALLT SEM ÉG Á.
Texti: Stefán Hilmarsson. 

Lífið er,ein óvissuferð
Ótalmargt þú heyrir og sérð.
En það er víst að flestir eiga sér ósk um að lifa
lengi og vel.
Og elska
eins er það nú hjá mér. 

Þú veist ég hef
gefið allt sem átti ég og stend og fell nú með því.
Það fer sem fer
þú færð miklu ráðið.
Lífið það er óútreiknanlegt.
En reiknaðu með mér. 

Margur er í stöðugri leit
hverju að ja guð einn það veit.
En ég hef fundið mína fjöl og mig langar að lifa
bæði lengi og vel.
Reyna að skilja
eitthvað eftir mig hér.

Þú veist ég hef
gefið allt sem átti ég og stend og fell nú með því.
Það fer sem fer
þú færð ýmsu ráðið.
En lífið það er óútreiknanlegt
nú sem endranær. 

Stundum fýkur í skjólin
sést ekki sólin
ljósið dvín.
En svo kemur nýr dagur
bjartur og fagur
Stundin mín.

Ég finn ég hef
gefið allt sem átti ég og stend og fell nú með því.
Það fer sem fer
þú færð miklu ráðið.
Lífið það er oft svo ótrúlegt.
Óútreiknanlegt.

Ég finn ég hef
gefið allt sem átti ég og stend og fell nú með því.
Það fer sem fer
lífið heldur áfram.
Leyfðu mér að lifa því með þér.
Já reiknaðu með mér.

26 júlí 2011

í dag er litli prins í heimsókn og við vorum að koma heim allt gengur mjög vel og hann svaka góður og rólegur hjá mér :)

Annars er frekar leiðinlegt veður úti núna, rigning og vindur bara....get ekki kallað það skemmtilegt veður ...ætlaði að fara í göngutúr með litla kút en það er ekki í boði nema að verða rennandi blautur....

Annars var alveg frábært að hafa Öldu vinkonu mína hér hjá mér í gær, við skemmtum okkur konunglega vel saman og brölluðum ýmislegt hehe...alltaf gaman að brjóta upp daginn og gera eitthvað óvanalegt saman....

En já meira er það svo sem ekki , blogga meira seinna...bæjó

Sólsetrið hér í Reykjavíkinni um kvöldið 25 júlí 2011

Svona leit sólsetrið út á fallegu mánudagskvöldi :) enjoy gurrr


Hér er ég :)


Hér erum við Alda vinkona mín sem mér þykir mjög vænt um :) 


7.25.2011

Sólsetrið hér í Reykjavíkinni

Svona leit sólsetrið út á fallegu mánudagskvöldi :) enjoy gurrr

Fyrsta bloggið mitt

Komið þið blessuð og sæl Rebekka heiti ég og er ný hér.

Ég hef brallað margt í dag ásamt vinkonu minni, bökuðum djúsí köku og elduðum BBQ kjúklinga vængi í matinn alveg svakalega gott.....Planið er svo að borða smá snakk og horfa á Hanted manseon myndina hef aldrei séð hana eða ekki svo ég muni allavega....

Á morgunn verð ég svo að passa litla drenginn hann er svo mikið krútt 3 ára snáði, við erum bara nokkuð góðir vinir þó ég segi nú sjálf frá hehe....

En ég veit ekki hvað ég á að skrifa meira núna, þannig bara bless í bili.

Ný síða

Ný síða komin í gang.

Hér er svo ég