jæja þá er ég búin í fyrsta prófinu mínu það gekk svona upp og ofan hehe, en sem betur fer eru 5 hæðstu einkunnirnar af 8 sem gilda þannig ef ég fæ ekki neitt gott út úr þessu prófi að þá dettur það út ef ég fæ gott út úr öllum hinum.
Aðstoðarskólastjórinn æddi inn í stofuna með myndavélina sína og tók myndir af okkur meðan tíminn var. Frekar óþægilegt haha en svo eftir bókfærsluna voru allir beðnir um að fara út því að þar átti að vera hópmyndataka efast stórlega að ég hafi sést haha þetta var óttarlegt kaoz að mín u mati. En núna er ég að fara í siðfræði og vonandi að það gangi betur en hinir tímarnir og svo er skipulagsdagur í vinnunni, engin börn og ég þarf að hafa alla athygli við að hlusta á stýrurnar og eitthvað sambandi við vinnuna og verðandi plan ef það mun einyvern tíman verða að því :P
En jamm blogga meira seinna, er bara í nokkuð góðu skapi þrátt fyrir heimþrá...sakna þess að vera heima og knúsa kisurnar mínar og fara með mömmu til ömmu hahah já þetta er svona aðal rútínan heima að fara á milli fólksins míns sem er mér svo mikilvægt :) En jæja ætla ekki að segja meira í bili... Hafið það gott. Kv Rebekka.
No comments:
Post a Comment