komið þið blessuð og sæl, þá er víst kominn 29 júlí og aðeins 2 dagar eftir af þessum mánuði og þá er víst kominn ágúst...pæliðið í þessu marrr....tíminn flýgur áfram....
verð að játa það að ég er nú bara nokkuð þreytt, var að passa litla strákinn og hann vildi ekki sofna strax haha mátti svo sem búast við því en það tókst að lokum :D tíhí :P rosa ánægð hehe...svo var ég að gera 1 tilraun að kenna Öldu að prjóna ...lykkjur eina slétta eina brugðna hehe á að verða svo vetlingur að lokum þegar verður komin regla á lykkjurnar og munstrið hehe þá ráðumst við á vetlingargerðina með 4 prjónum hehe...þetta er í fyrsta sinn sem ég prufa að kenna einhverjum að prjóna en sjáum til hvernig þetta mun ganga hehe en ég er rosa stolt af henni að þora að prufa þetta.
Við bökuðum karamelluköku í dag mér fannst hún svaka góð hehe, týpísk svona krakka kaka og með þeyttum rjóma með hehehe heimagerð karamella finnst mér lang best hehe...en er að nýta tímann og borða allann "fjandann" áður en ég fer að taka mig svakalega vel og mikið á en nýt þess aðeins núna áður en það verður :P
Annars er ekkert planað fyrir morgundaginn nema Alda gistir hjá mér núna og við ætlum svo að reyna að prjóna eitthvað á morgunn, spurning hvort það verði hægt að byrja á einu stykki vetling :Ð ??? kemur í ljós en það er aldrei að vita samt :)
En ég er alltof þreytt til að hugsa meira hvað ég get skrifað um þannig ég skrifa meira seinna...verið þið blessuð og sæl og góða nótt.