1.29.2012

janúar alveg að verða búinn

Góða kvöldið allir, þessa helgina hef ég einungis haldið mig innandyra...tekið til, bakað, lært, sofið og haft það gott  svona inná milli ... prufaði að baka uppskrift af rúnstykkjum og þau voru bara mjög góð en gerði þetta bara í bolluformi á meðan ég var að æfa mig, svo í kvöld gerði ég einnig frá grunni folaldagúllas og kartöflumús sem var fínt líka hehe um að gera að æfa sig á meðan maður býr einn.


Ég hef því miður fengist við mígreni alltof lengi sem poppar upp öðru hvoru og gerði það heldur betur á föstudagskvöldið þetta er alveg skelfilegt að vera svona en upp úr þessu ákvað ég að panta tíma hjá augnlækni og mun ég hringja á morgunn til þess, svo er annað mál hvenær ég fæ tíma...sjá hvað kemur út úr því, það er ekki eðlilegt að vera með augnverki alla daga og út úr því mígreni. Einnig er þetta líka verst þegar þessi snjóbirta er.


Ég var með foreldra mína í heimsókn frá kvöldi 17 - morguns 23 janúar og áttum við fínan tíma saman. Mollý kisan þeirra kom með þeim og var hjá mér í pössun á meðan er svo lítil og góð kisa en auðvitað fór hún til baka með þeim hehe...kúrði hjá mér upp í rúmi svo notalegt hjá okkur og malaði á fullu.


Það er nóg að gera í sambandi við skólann og hann hefur gengið en sem komið er, þetta kemur allt saman með kalda vatninu hehe, ég legg mesta áherslu á það að ná þessu háar einkunnir segja ekki til um hvernig manneskja mun vera í því starfi sem maður velur sér þegar að vinnunni sjálfri kemur. Aðal atriðið er að ná og standa sig svo þegar að alvörunni kemur.


En já tíminn líður og janúar þessi fyrsti mánuður nýs árs er að verða búinn aðeins 2 dagar eftir af honum og þá tekur við febrúar, tíminn er víst fljótur að líða sérstaklega þegar maður hefur nóg að gera...með þessum orðum kveð ég í kvöld og vona að þið sofið vel í nótt...góða nótt allir :)

No comments:

Post a Comment