7.26.2011

Lagið - Allt sem ég á

Ég er rosalega hrifin af þessu lagi og hvað þá textanum ofboðslega fallegt lag.

ALLT SEM ÉG Á.
Texti: Stefán Hilmarsson. 

Lífið er,ein óvissuferð
Ótalmargt þú heyrir og sérð.
En það er víst að flestir eiga sér ósk um að lifa
lengi og vel.
Og elska
eins er það nú hjá mér. 

Þú veist ég hef
gefið allt sem átti ég og stend og fell nú með því.
Það fer sem fer
þú færð miklu ráðið.
Lífið það er óútreiknanlegt.
En reiknaðu með mér. 

Margur er í stöðugri leit
hverju að ja guð einn það veit.
En ég hef fundið mína fjöl og mig langar að lifa
bæði lengi og vel.
Reyna að skilja
eitthvað eftir mig hér.

Þú veist ég hef
gefið allt sem átti ég og stend og fell nú með því.
Það fer sem fer
þú færð ýmsu ráðið.
En lífið það er óútreiknanlegt
nú sem endranær. 

Stundum fýkur í skjólin
sést ekki sólin
ljósið dvín.
En svo kemur nýr dagur
bjartur og fagur
Stundin mín.

Ég finn ég hef
gefið allt sem átti ég og stend og fell nú með því.
Það fer sem fer
þú færð miklu ráðið.
Lífið það er oft svo ótrúlegt.
Óútreiknanlegt.

Ég finn ég hef
gefið allt sem átti ég og stend og fell nú með því.
Það fer sem fer
lífið heldur áfram.
Leyfðu mér að lifa því með þér.
Já reiknaðu með mér.

26 júlí 2011

í dag er litli prins í heimsókn og við vorum að koma heim allt gengur mjög vel og hann svaka góður og rólegur hjá mér :)

Annars er frekar leiðinlegt veður úti núna, rigning og vindur bara....get ekki kallað það skemmtilegt veður ...ætlaði að fara í göngutúr með litla kút en það er ekki í boði nema að verða rennandi blautur....

Annars var alveg frábært að hafa Öldu vinkonu mína hér hjá mér í gær, við skemmtum okkur konunglega vel saman og brölluðum ýmislegt hehe...alltaf gaman að brjóta upp daginn og gera eitthvað óvanalegt saman....

En já meira er það svo sem ekki , blogga meira seinna...bæjó

Sólsetrið hér í Reykjavíkinni um kvöldið 25 júlí 2011

Svona leit sólsetrið út á fallegu mánudagskvöldi :) enjoy gurrr


Hér er ég :)


Hér erum við Alda vinkona mín sem mér þykir mjög vænt um :)