Dagurinn í dag var mjög fínn, ég fór til litla drengsins og fór svo með hann heim og hann var svo indæll hér hjá mér og steinsofnaði svo hehe algjört krútt :)
Annars hef ég það bara fínt allt gengur vel og mér finnst tíminn fljúga áfram og bara fatta eiginlega ekki hvað varð um alla hina dagana sem eru búnir af árinu. Ég eldaði mér aspas súpu og hamingju eggin sem Gunna frænka gaf mér hehe mjög góð og sauð þau svo eggjarauðan væri lin nammi namm hehe.....
Ég elska að horfa á private practice sem er núna á RÚV á hverjum miðvikudegi ef enginn fótbolti eða önnur truflun er á dagskránni....og er núna bara að njóta þess að vera til, geri allt til að reyna að vera jákvæð og líða vel og geri mitt besta í að hlusta á aðra líka ( vini mína sérstaklega) er með í gangi skemmtilega róandi tónlist og bíð eftir morgundeginum ætla þá að njóta dagsins með Öldu vinkonu minni sem mér þykir mjög vænt um, við bara smullum saman þegar að önnur vinkona okkar var búin að kynna okkur fyrir hvor annarri :) guði sé lof að hún gerði það hehehe
Við ætlum að baka karamellu köku frá grunni og þetta er svo ofboðslega gott, að njóta þess áður en ég dríf mig í megrun hehehe verð víst að fara að taka mig á þótt öðrum finnist ég ekkert svakaleg þá veit maður það víst best :)
svo kannski það er ekki alveg vitað fer ég til litla kúts annaðkvöld en það kemur í ljós á morgunn...en annars er lífið bara nokkuð gott þrátt fyrir peningavesen sem kemur þegar fartölvuskjáir bila, eða bíllinn mans bilar þetta kostar víst allt pening en þannig er lífið- það er einn peningur, hamingja, ást, vinátta, sorg og bara allur pakkinn og það er svo mikilvægt að reyna að njóta þess að vera til...hver og einn gerir það svo á sinn hátt, auðvitað koma þættir inn sem maður hefði viljað að væru ekki til en við getum ekki breytt því nema að þróa þekkingu og dreyfa henni út um allan heim....svo er bara spurning hvort fólk tekur það til sín og lærir eitthvað á þessari visku.
En jæja þetta er víst komið nóg í dag...ég kveð að sinni þangað til ég hef þörf á að tjá mig meira hehe....hafið það geggjað gott allir sem lesa þetta....bless í bili. kv Rebekka.