Komið þið sæl, long time no seen :) Hvað segið þið þá? vonandi gott bara.
Nú líður að jólum og er kominn sjötti nóvember, get þó sagt að ég er í nokkuð góðu andlegu jafnvægi þessa dagana, t.d í gærkvöldi skellti ég í Engiferkökur sem ég bakaði í fyrsta sinn ein og með hrærivélinni minni sem er algjör draumur.
Ofdekra kisurnar mínar eins og ég get og fuglarnir mínir hafa það sömuleiðis gott. 5 finku egg eru komin hjá parinu mínu og verður spennandi að vita hvað eggin verða mörg í heildina og hvað margir ungar koma í þetta skipti, eitt reyndar brotnaði þannig í raun væru þau 6 en svona getur gerst, síðast komu 4 ungar úr 6 eggjum og allir heilbrigðir :) 2 ungar fóru í gæludýrabúðina til Tjörva, Furðufuglar og fylgifiskar, stelpu unginn er hjá mér og fer í ræktun þegar hún er tilbúin og 1 strákinn keypti ræktandi þannig ungarnir fara vonandi á góð heimili sem eftir voru í búðinni.
Á svo eftir að baka fleiri sortir og prufa mig áfram í þessu hehe. En jæja ég hef það fínt og blogga meira seinna. Hafið það gott öll sömul.
No comments:
Post a Comment