8.07.2011

Góður tími í sumarfríinu

hæhæ ég veit það er komið smá tími síðan ég skrifaði hér inná síðast :) 

Ég var í heimsókn heima hjá mér á Skagaströnd ákvað að taka mér smá sumarfrí og fara þangað...líður alltaf lang best þar í litla staðnum hehe....kisurnar tóku náttúrulega mjög vel á móti mér hann elsku Grettir minn og Mollý mín sváfu upp í rúmi hjá mér til skiptist og bæði saman líka voða góð við mig heheh og hann svaf einnig ofan á sænginni minni á mallanum mínum hehe besti köttur ever...elska þau öll svo mikið.....

þetta var óskup notalegt að vera þarna ein bara með mömmu, hitta ömmu, systur mömmu og bróður hennar..allt eins og á að vera hehe...

Ég bæði grillaði og eldaði djúpsteiktann fisk með lauk og öllu dótarínu sem því fylgir ekkert smá gott heheh og í bæði skiptin buðum við ömmu í mat þetta var því mjög góður tími þarna heima, var að prufa að hekla í gær svona prufu langar svo til að læra að hekla en það tekur tíma og æfingu hehe....hægt að gera svo margt fallegt bæði dúka, föt og annað. Bara var ekki nægur tími til að eitthvað meira en prufa úr hekli yrði til í þetta skipti :) Annars var ég bara að prjóna ungbarna sokk þar sem ég var búin með þann fyrri þá auðvitað vantaði þann seinni hehe en hann er hálfnaður verð ekki lengi með restina þegar ég kemst í það :D

Hins vegar vonast ég til að fara að fá fartölvuna mína til mín í næstu viku, vegna viðgerðar sem er búið að taka síðan í byrjun júní, er það nú þjónusta hjá EJS ömurleg....láta mann bíða endalaust eftir því að kíkja til þess að segja mér að þurfi að panta nýjann skjá sem ég gat nú sagt mér sjálf og þeim.... en það er loksins búið að panta hann og ætti ég að fá þetta afhent í næstu viku, ekki er nú hægt að fara í nám án fartölvu nú á dögum :) 

Fór í heimsókn til Hrefnu frænku og tók myndir úr garðinum hennar svaka flott allt hjá þeim hjónum :) hitti einnig afa minn, pabba pabba míns :) nóg að gera, náðum einnig í bróður minn þangað sem hann á heima og til baka aftur og við vorum þá ég mamma mín og bróðir minn 3 heima í kotinu óskup notalegt bara hehe...auk 3 katta :) 

En jæja nú sit ég hér með einn somersby apple cider, hélt þetta væri eitthvað svaka gott hef smakkað þetta áður en einhvern vegin er þetta ekki alveg sama bragð núna þegar maður situr hér og smakkar þetta hér ein hehe já ég drekk ekkert að viti en finnst stundum gaman að smakka eitthvað nýtt en bara lítið af því þannig ég get varla sagt að ég drekki áfengi..


En jæja nú er ég orðin mjög þreytt haha og búin að skrifa held ég nóg í bili, ég er allavega komin suður aftur eftir góðan tíma heima og það er bara búið að vera blíða hér síðan ég kom kl 18 í dag alveg geggjað veður rosa gott :) en ég skrifa meira seinna....kv Rebekka.

1 comment: